Draumar breytast í martröð hjá Verzló og MR 5. janúar 2011 11:00 Björg Brjánsdóttir, formaður Herranætur, og Sigríður Dagbjört Ásgeirsdóttir, formaður Nemendamótsnefndar Verzlunarskólans, draga ekki úr gömlum erjum skólanna með því að setja upp nánast sömu sýninguna í febrúar. Fréttablaðið/Vilhelm „
Við vorum búin að ræða þetta leikrit löngu áður en við vissum af Verzlunarskólanum, en vorum samt ekki búin að taka neina endanlega ákvörðum," segir Björg Brjánsdóttir, formaður Herranætur, leiklistarfélags Menntaskólans í Reykjavík, en skólinn frumsýnir leikverk Shakespeares, Draum á Jónsmessunótt, hinn 25. febrúar í húsi Norðurpólsins. Sú staða er komin upp að Verzlunarskóli Íslands frumsýnir söngleikinn Drauminn í Loftkastalanum hinn 3. febrúar, en söngleikurinn er einmitt byggður á fyrrnefndu verki Shakespeares. Það er því ljóst að söguþráður sýninganna verður með ansi svipuðu sniði. „Ég komst að þessu fyrir um þremur vikum. Það var mikill sorgardagur," segir Sigríður Dagbjört Ásgeirsdóttir, formaður Nemendamótsnefndar Verzlunarskólans. Sigríður segir undirbúninginn löngu hafinn, og því hafi ekki komið til greina að skipta um sýningu. „Það er náttúrlega ekkert hægt að breyta um sýningu núna, það fer allt að verða tilbúið." Bæði Verzlunarskólinn og Menntaskólinn í Reykjavík eiga sér langa leiklistarsögu. Verzlunarskólinn hefur hins vegar alltaf sett upp söngleiki og verður engin breyting á því í ár. „Þar sem við erum með söngleik tel ég að okkar sýning verði töluvert meira fyrir augað," segir Sigríður Dagbjört. Björg hefur þó litlar áhyggjur af því að fólk muni frekar sækja sýningu Verzlunarskólans. „Mér finnst frekar áhugavert að sjá bæði leikrit og nútímasöngleik, byggða á sama leikverkinu, og ég vona að flestir vilji það líka." Aldrei áður hefur komið upp sú staða að tveir af stærri menntaskólum landsins taki upp sömu sýninguna. „Þetta er náttúrlega svolítið spes, en vonandi verður þetta okkur báðum til framdráttar. Við ætlum bara að halda okkar striki og láta þetta ekki hafa áhrif á okkur," segir Sigríður Dagbjört. Orri Huginn Ágústsson fer með leikstjórn Draumsins en það er í höndum Gunnars Helgasonar að leikstýra MR-ingum. kristjana@frettabladid.is
Mest lesið Grafalvarlegt nýtt efni: „Jafn tilgangslausar og að selja flugelda inni í helli“ Tónlist Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið Tónlist Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Lífið Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Brjálaðar boltamömmur berjast Bíó og sjónvarp Geislasverð Loga Geimgengils seldist á 470 milljónir Bíó og sjónvarp „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Stytta af Charlie Kirk á Times Square Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Fleiri fréttir Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Sjá meira