Gullkálfinum ekki slátrað 20. október 2011 09:00 Jason Statham er orðaður við tvær Transformers-myndir en Shia LaBeouf hyggst ekki leika í þeim. Michael Bay er í viðræðum um að leikstýra myndunum sem hafa malað gull þrátt fyrir að þykja ekki ýkja merkilegar.
Steven Spielberg og Michael Bay eiga í viðræðum við Paramount-kvikmyndaverið og Hasbro-leikfangaframleiðandann um gerð fjórðu og fimmtu Transformers-kvikmyndanna. Leikfangaframleiðandinn er sagður eiga frumkvæðið að þessum viðræðum enda hafa fyrstu kvikmyndirnar þrjár reynst sannkallaðar gullnámur hvað sölu á leikföngum varðar. Samkvæmt frétt Variety hafa Hasbro og Paramount háleitar hugmyndir um framtíð Transformers og vilja allra helst gera tvær myndir í einu. Hins vegar er vitað að leikstjórinn Bay er ekkert svakalega spenntur fyrir því að setjast aftur í leikstjórastólinn, hann hefur augastað á öðrum verkefnum. Vefur kvikmyndatímaritsins Empire bendir hins vegar á að Bay sé mannlegur, hann fái gommu af seðlum fyrir verkefnið og þar að auki tækifæri til að leika sér með allt það nýjasta í tæknibrelluheiminum. Á hinn bóginn er öruggt að aðalleikarinn, Shia LaBeouf, verður ekki lengur með. En það kemur ekki að sök í svona tæknibrellumyndum, menn geta auðveldlega kokkað upp nýjan söguþráð og hetju og sá sem helst hefur verið nefndur sem arftaki aðalhlutverksins er breski harðhausinn Jason Statham. - fgg
Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Fullkominn kókos og chiagrautur að hætti Elísabetar Mettu Lífið Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Fleiri fréttir Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út Sjá meira