Kastast í kekki milli stjarna í Hollywood 20. október 2011 11:00 Baltasar Kormákur hefur tekið verkefninu 2 Guns sem David Russell, besti vinur Mark Wahlberg, átti að leikstýra. Samkvæmt fjölmiðlum þar vestra eru Russell og Wahlberg hættir að tala saman eftir að Russell sniðgekk leikarann fyrir sína nýjustu mynd.
Á meðan allt leikur í lyndi milli Baltasars Kormáks og Marks Wahlberg og þeir tveir farnir að leggja drög að sinni næstu mynd, 2 Guns, hefur heldur betur kastast í kekki milli leikarans og leikstjórans Davids O. Russell. Vinslitin voru aðalmálið á bandarískum kvikmyndavefmiðlum í gær. Vináttan hangir á bláþræði eftir að Russell ákvað að sniðganga Wahlberg við valið í kvikmyndina The Silver Linings Playbook og fá í staðinn Bradley Cooper. „Hann kostaði minna," hefur vefmiðillinn The Wrap eftir heimildarmanni sínum. Wahlberg dró Russell upp úr miklu drullusvaði þegar hann fékk leikstjórann til liðs við sig í kvikmyndinni The Fighter, Russell hafði þá ekki fengið eitt einasta verkefni eftir kvikmyndina I Heart Huckabees og til að bæta gráu ofan á svart lak myndband á netið þar sem leikstjórinn sást öskra á leikkonuna Lily Tomlin. Skapofsi Russells hefur áður komið honum í bobba því hann hnakkreifst við George Clooney á tökustað Three Kings. Það þykir ekki gott að verða „óvinur" Wahlbergs um þessar mundir því leikarinn hefur á undanförnum árum komist til mikilla metorða í Hollywood, hann bæði leikur í og framleiðir bíómyndir og hefur þar að auki haslað sér völl í sjónvarpsgeiranum með sjónvarpsþáttaröðinni Entourage. Svo skemmtilega vill til að Russell þessi átti að leikstýra 2 Guns og hafði fengið Vince Vaughn til að leika aðalhlutverkið en Wahlberg og Baltasar hafa nú yfirtekið verkefnið og ætla að skila því til byggða árið 2013. - fgg
Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Fullkominn kókos og chiagrautur að hætti Elísabetar Mettu Lífið Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Fleiri fréttir Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út Sjá meira