Myndaði japanska poppstjörnu 20. október 2011 12:00 Japanska poppstjarnan Miliyah Kato er mikill aðdáandi Sögu Sig og fékk hana til að mynda og stýra ljósmyndabók um sig. „
Hún fann mig í gegnum bloggið mitt," segir ljósmyndarinn Saga Sigurðardóttir. Saga myndaði nýlega japönsku poppstjörnuna Miliyah Kato fyrir ljósmyndabók sem fjallar um söngkonuna. Saga var einnig listrænn stjórnandi bókarinnar, sem kemur út á næstu dögum þegar Kato byrjar að fylgja eftir nýrri safnplötu með tónleikaferð í heimalandi sínu. Kato er afar vinsæl í Japan og náði toppi Billboard-listans þar fyrir tveimur árum með laginu Love Forever. „Ég átti fyrst að fara til Tókýó að gera þetta, en svo komu þau til London svo við gætum gert þetta þar," segir Saga, en hún hefur búið í London undanfarin misseri og starfað sem tískuljósmyndari. Kato er mikill aðdáandi Sögu og óskaði eftir kröftum hennar eftir að hafa skoðað bloggsíðu hennar. „Það sem mér fannst svo merkilegt við þetta er að poppstjörnur eru yfirleitt með svo mikið af fólki til að ákveða allt fyrir sig. Hún fær hins vegar frelsi til að taka þátt í að móta ímyndina sína." Saga hefur í nógu að snúast í London. Mikið hefur verið fjallað um ljósmyndirnar hennar í fjölmiðlum ytra og vakti auglýsingaherferðin sem hún gerði fyrir Top Shop talsverða athygli. Hún er stödd á Íslandi í dag, en hún og Hildur Yeoman fatahönnuður opna sýningu á samstarfsverkefni sínu í Hafnarborg 29. október. Þá kemur hún fram í lokaþætti Ísþjóðar Ragnhildar Steinunnar á RÚV í kvöld. - afb
Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Fullkominn kókos og chiagrautur að hætti Elísabetar Mettu Lífið Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Fleiri fréttir Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út Sjá meira