Lífið

Rihanna nær sáttum út af umdeildu myndbandi

Rihanna hefur komist að samkomulagi við tískuljósmyndarann David LaChapelle utan dómstóla. Hann hélt því fram að myndir sem hann tók hefðu verið notaðar án hans leyfis í myndbandi við lag hennar S&M.

LaChapelle krafðist um 115 milljóna króna í skaðabætur. „Mér líkar vel við RiRi. Þetta er ekkert persónulegt heldur snýst þetta eingöngu um viðskipti," sagði ljósmyndarinn þegar hann höfðaði málið.

„Tónlistarmenn borga fyrir að nota lagabúta frá öðrum og því ætti það sama að gilda um myndefni listamanna."

Hér fyrir ofan má sjá umrætt myndband.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.