Innlent

Garðeigendur hvattir til að klippa tré sem vaxa út fyrir lóðamörk

Trjágróður sem vex út fyrir lóðamörk getur skapað óþægindi og jafnvel hættu fyrir gangandi og akandi vegfarendur og hvetur Reykjavíkurborg nú garðeigendur til að bregðast við og klippa tré sín svo þau hvorki hindri vegfarendur, hylji umferðarskilti né dragi úr götulýsingu.

„Einnig þarf að hugsa fyrir aðgengi vegna snjóhreinsunar, en gera þarf ráð fyrir 2,8 metra hæð undir trjágreinar á gangstígum til að snjóruðningstæki komist undir á þeim dögum sem trjágreinar slúta undan snjóþunga,“segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×