Innlent

Skemmdarverk á Selfossi

Mikil skemmdarverk voru í nótt unnin á stórri vinnuvél, sem stóð við steypustöðina í útjaðri Selfoss.

Hún var grýtt með brotum úr gangstéttarhellum þannig að rúður brotnuðu og stjórnbúnaður skemmdist. Að sögn lögreglu hleypur tjónið á mörg hundruð þúsundum króna. Skemmdarvargarnir eru ófundnir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×