Lífið

Rokktrefill frá Tyler

Auglýsingamynd fyrir nýju línuna.
Auglýsingamynd fyrir nýju línuna.
Steven Tyler, söngvari Aerosmith, hefur sett á fót sína eigin tískulínu. Það er Andy Hilfiger sem hefur umsjón með hönnuninni og kemur Tyler þar hvergi nærri. Hans hlutverk verður að kynna nýju línuna í fjölmiðlum.

Fyrsta kynningin var í New York á dögunum þar sem dætur Tylers, Chelsea og Mia, voru með honum í för. Chelsea mun einnig sýna fötin sem fyrirsæta á komandi ári. Meðal þess sem tískulínan býður upp á er svokallaður rokktrefill sem verður í anda treflanna litríku sem Tyler er þekktur fyrir að nota við hin ýmsu tækifæri.

Hægt er að kynna sér línuna nánar á heimasíðunni andrewcharles.com.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.