Úr 1.500 áhorfendum í fjörutíu 21. október 2011 15:00 ferðinni að ljúka Tónleikaferð Skálmaldar um Evrópu hefur gengið sérstaklega vel.fréttablaðið/stefán
Víkingarokksveitin Skálmöld lýkur tónleikaferð sinni um Evrópu í Austurríki á sunnudaginn. Alls verða tónleikarnir 24 talsins á 24 dögum og í ellefu löndum, eins og Fréttablaðið hefur greint frá. „Þetta hefur gengið virkilega vel. Þetta er búið að vera alveg magnað,“ segir söngvarinn Björgvin Sigurðsson, sem var staddur í Búdapest þegar blaðamaður náði sambandi við hann. Tónleikaferðin kallast Heidenfest og er þetta þriðja árið í röð sem hún er farin. Skálmöld stígur fyrst á svið og iðulega hefur sveitin spilað fyrir nokkur hundruð manns upp í 1.500 eins og gerðist í HMV Forum í London. Tvisvar á síðustu dögum hafa þó einungis verið mættar um fjörutíu hræður á tónleika þeirra, eða í Þýskalandi og í Slóveníu. „Það er svolítið skrítið að fara úr því að spila fyrir allt að 1.500 manns og svo fyrir hálftómum stað. Ég skal viðurkenna að maður var orðinn of góðu vanur,“ segir Björgvin og hlær. „En við gefum aldrei eftir. Þessi ferð er fyrir okkur og er farin til að safna liði. Hver einasti haus telur.“ Skálmöld ferðast um í stórri, tveggja hæða rútu ásamt norsku sveitinni Trollfest og hinni rússnesku Arkona en alls eru þrjár rútur á sama ferðalagi. Björgvin og félagar eru með svefnaðstöðu á efri hæðinni. Spurður hvort ferðalagið hafi verið erfitt segir hann að keyrslan geti verið þreytandi. „Þetta er búinn að vera heilmikill þvælingur fram og til baka. Þetta er rosaleg keyrsla, yfirleitt á hverjum degi, en það er keyrt á nóttunni,“ segir söngvarinn. Skosku sjóræningjarokkararnir í Alestorm hafa einnig ferðast með Skálmöld og hafa tekist góð kynni með þeim tveimur böndum, að sögn Björgvins. - fb
Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Fullkominn kókos og chiagrautur að hætti Elísabetar Mettu Lífið Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Fleiri fréttir Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út Sjá meira