Árni með Sveppa til Ameríku 17. október 2011 08:00 Útrásin hans Sveppa Árni Samúelsson, eigandi Sambíóanna, hefur tröllatrú á Sveppa-myndunum og ætlar að selja þær á AFM-söluhátíðinni í Los Angeles. Sveppi segir að þríleikurinn myndi sóma sér vel í hvaða landi sem er. Fréttablaðið/Stefán „
Hann hefur tröllatrú á okkur,“ segir Sverrir Þór Sverrisson. Árni Samúelsson, eigandi Sambíóanna, ætlar að fara með Sveppa-myndirnar þrjár til Ameríku og kynna þær á AFM-söluhátíðinni eða American Film Market. Að sögn Sveppa er Árni þegar komin með einn áhugasaman sem vill gjarnan fá að sjá myndirnar. „Hann er búinn að gera alvöru plaköt og allt,“ bætir Sverrir við. Eins og komið hefur fram í Fréttablaðinu hefur þriðja Sveppa-myndin, sem nú er sýnd í Sambíóunum, malað gull í aðsókn og miðasölu og samkvæmt síðustu tölum hafa rúmlega 27 þúsund manns séð myndina. Rúmlega hundrað þúsund gestir hafa séð myndirnar þrjár og því ekkert skrýtið að erlendir aðilar skuli sýna þessu áhuga. „Við erum líka með eðal-þríleik í höndunum, hann myndi sóma sér vel í hvaða landi sem er.“ „Við sendum út stóran pakka í dag og vonandi verður framhaldið jákvætt,“ segir Árni í samtali við Fréttablaðið. Hann er búinn að fá Jim Harvey, virtan sölufulltrúa, til að skoða Sveppa-myndirnar og sjá hvort það sé ekki hægt að koma þeim á framfæri við erlend dreifingarfyrirtæki. „Harvey er mikill reynslubolti, hefur verið innanbúðarmaður hjá stórum sölufyrirtækjum en er núna búinn að stofna sitt eigið fyrirtæki. Og þetta er í fyrsta skipti sem þetta er gert svona; yfirleitt hafa íslenskar bíómyndir bara verið á sölubásum en ekki með sinn eigin sölufulltrúa,“ útskýrir Árni sem telur að Algjör Sveppa-myndirnar eigi mikið erindi við bandarísk börn. „Strákarnir Sveppi og Bragi [Hinriksson] vanda svo vel til verk og allt það efni sem unnið er fyrir myndina, kynningarefni og plaköt, er með því besta sem ég hefð séð.“- fgg
Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Fullkominn kókos og chiagrautur að hætti Elísabetar Mettu Lífið Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Fleiri fréttir Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út Sjá meira