Innlent

Framsókn kynnir „plan b“

Framsóknarmenn hafa lagt fram svokallað „plan b“ til að hefja sókn í atvinnumálum og koma á stöðugleika í efnahagsmálum. Meðal tillagna er að afnema verðtryggingu í skrefum og einfalda skattakerfið.

Þetta kemur fram í tveimur þingsályktunartillögum sem þingflokkur framsóknarmanna hafa lagt fram á Alþingi og voru kynntar nú fyrir hádegi.

Í tillögunum leggja Framsóknarmenn til að strax verði gripið til aðgerða sem greiða fyrir fjölgun starfa, styðja við hagvöxt og auka velferð, sem og að efla stöðugleika í efnahagsmálum, endurskipuleggja skuldir heimila og fyrirtækja og breyta áherslum í skattamálum.

„Við erum þarna með heildaráætlun, bæði í atvinnu og efnahagsmálum, því þetta tengist allt og við teljum okkur geta sýnt fram á að ástandið þurfi ekki að vera eins og það er það séu til lausnir og hægt að nýta þau tækifæri sem hér eru til staðar,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins.

Meðal úrræða er að verðtrygging verði afnumin í skrefum, hafið verði átak í opinberum framkvæmdum, skattaumhverfi atvinnulífsins endurskoðað og skattakerfið einfaldað til dæmis með því að afnema þrepaskiptan tekjuskatt, stimpilgjöld og ýmsar sérreglur sem komið hefur verið á síðastliðin ár.

Einnig eru settar fram margvíslegar tillögur til stuðnings við uppbyggingu í mismunandi greinum atvinnulífsins, lagt er til að framtíðarmöguleikar Íslands í gjaldmiðlamálum verði skoðaðir í þverpólitískri samvinnu, gjaldeyrishöft afnumin á um hálfu ári og að gerð verði trúverðug áætlun um sterkari peningastefnu til framtíðar.

„Ég var hreinlega hissa á því hversu jákvæð viðbrögðin voru þegar við kynntum þetta í síðustu viku, efnahagshlutann. Þar töluðu allmargir þingmenn bæði samfylkingar- og sjálfstæðismenn sem tóku mjög vel í þetta svo það var til að auka hjá mér bartsýni.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×