Krafturinn selur grimmt 5. maí 2011 10:45 The Fast and the Furious flokkurinn hefur getið af sér fjórar myndir og eina aukaafurð. Myndirnar hafa rakað inn peningum þrátt fyrir að hafa aldrei verið vinsælar hjá kvikmyndagagnrýnendum. Fimmta myndin virðist þó ætla að slá öllum við; hún hefur fengið frábæra dóma og rauk beint á toppinn í Bandaríkjunum.
Þegar fyrsta kvikmyndin um bílatuddann Toretto og lögregluþjóninn Brian O‘Conner var frumsýnd fyrir áratug hefði engan kvikmyndaspekúlant grunað að fjórar kappaksturskvikmyndir ættu eftir að fylgja í kjölfarið. En glæsikerrurnar trekkja að. Fast Five fór rakleiðis á toppinn í Bandaríkjunum enda skartar myndin þeim Paul Walker og Vin Diesel í aðalhlutverkum. Myndin tekur upp þráðinn þar sem Fast & Furious (nafnafrumleikinn er ekkert að þvælast fyrir) skildi við hann en þá unnu þeir Toretto og O‘Conner að því fyrir FBI að handsama mexíkóskan heróíninnflytjanda. Að þessu sinni hyggjast þeir félagar ásamt gamla góða genginu stela hundrað milljónum dollara frá hinum ofurspillta auðjöfri Hernan Reyes. Verkefnið verður ögn snúnara þegar lögreglumaðurinn Luke Hoobs nartar í hælana á þeim. Fyrsta myndin í þessum flokki sló nánast samstundis í gegn hjá bílaóðum kvikmyndahúsagestum árið 2001. The Fast and the Furious verður seint sökuð um að vera greindarleg hasarmynd, aðaláherslan var lögð á kraftmikla bíla, fáránleg hasaratriði og suðrænar stúlkur í magabolum. Söguþráðurinn var ekkert ýkja flókinn og leikurinn í meðallagi góður en þetta kom ekki að sök; myndin skilaði 144 milljónum dala í gróða þrátt fyrir að kosta aðeins 38 milljónir. Sannkölluð gullnáma. Mynd númer tvö bar heitið 2 Fast 2 Furious og fékk afleita dóma þrátt fyrir að við stjórnvölinn sæti John Singleton, sá ágæti leikstjóri. Paul Walker var á sínum stað sem O‘Conner en Vin Diesel var víðsfjarri. Í stað hans komu þau Tyrese Gibson og Eva Mendes. En „vondu“ dómarnir höfðu engin áhrif, ungir karlmenn flykktust í bíó til að sjá glæsikerrurnar spæna upp malbikið í æsilegum kappakstri löggunnar og bófaflokka. 127 milljónir dala komu í kassann. Ekki þarf að hafa mörg orð um The Fast and the Furious: Tokyo Drift; hún er aukaafurð (e. spinoff“)í Fast and the Furious seríunni og segir frá ungum vandræðagemsa sem sogast inn í götukappakstursmenningu Japans. Myndin fékk skelfilega dóma og aðsóknin var ekki upp á marga fiska. Aðstandendur flokksins lögðu saman tvo og tvo; Paul Walker og Vin Diesel voru tvíeyki sem ekki mátti aðskilja. Og í næstu mynd yrðu þeir að beina sjónum sínum að amerískum glæsikerrum. Og viti menn. Fast & Furious var frumsýnd 2009 með þeim Walker og Vin Diesel og herbragðið skilaði sér fullkomlega; 155 milljónir dala komu í kassann og samanlagt hafa því myndirnar fjórar skilað tæplega hálfum milljarði dala, eða 56 milljörðum íslenskra króna. Fimmta myndin virðist vera á góðri leið með að verða sú vinsælasta í röðinni og hefur þar að auki fengið viðunandi dóma. Það er því ekkert skrítið að þegar hefur verið tilkynnt um sjöttu myndina. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Kærleiksbomba frá GusGus Tónlist Carmina Burana sem maður vill helst gleyma – hvað fór úrskeiðis í Hörpu? Gagnrýni Svanhildur Hólm fór holu í höggi Lífið Ástin blómstrar hjá Rósu Líf og Anahitu Lífið Biggi ekki lengur lögga Lífið Væri til í fjörutíu eiginmenn og nokkra sykurpabba Lífið Þjóðin tjáir sig: Skipbrot VÆB, söguleg núll stig og meðalgreind heimsálfa Lífið 50+: „Það þykir ekki töff að segjast vera einmana“ Áskorun Stjörnulífið: Bikiní dress vikunnar Lífið Ungfrú Ísland með flestar tilnefningar Menning Fleiri fréttir Arnar og Sigrún Heba selja glæsihús í Kópavogi Svanhildur Hólm fór holu í höggi Ástin blómstrar hjá Rósu Líf og Anahitu Væri til í fjörutíu eiginmenn og nokkra sykurpabba Biggi ekki lengur lögga Ásgeir og Hildur eiga von á stúlku Stefán Einar tók vel á því með Ísfélaginu Stjörnulífið: Bikiní dress vikunnar Ótrúlegustu atvik geta veitt innblástur Geggjaðar gellur í gæsun Grímu Thorarensen Felix kveður Eurovision Ein óvæntustu úrslit Eurovision-sögunnar Krakkatían: Eurovision, jarðskjálftar og dvergar Voru í sjötta sæti í undankeppninni Þjóðin tjáir sig: Skipbrot VÆB, söguleg núll stig og meðalgreind heimsálfa Ísland fékk stig frá þessum löndum Austurríki sigurvegari Eurovision 2025 Íslendingar á samfélagsmiðlum: „Við hljótum að vinna þetta?“ Klúróvision í kvöld: „Þetta fer svo fyrir brjóstið á okkur að við förum úr fötunum“ Vaktin: Stórsigur Austurríkis og VÆB fengu 33 stig Ísraelska söngkonan biðlar til Íslendinga á íslensku Krókódíllinn úr Happy Gilmore allur Bjarni Ara í íslensku dómnefndinni Berglind Festival og Jón Geir njóta lífsins á Tenerife Sterkar vísbendingar um að Céline Dion mæti í kvöld Seldu allt sem þau áttu og sigla um heiminn Fréttatía vikunnar: VÆB, lögreglueftirlit og lúxusþota Kranavatn á þúsund krónur en slapp við mína verstu martröð Fagnarlæti yfirgnæfðu baulið en óvíst hvaðan þau komu Baráttan um jólagestina hafin Sjá meira