Árita Liverpool-bók með gömlum Liverpool-goðsögnum 15. október 2011 04:00 Arngrímur og Guðmundur eru á leið í mikla kynnisferð til Liverpool að kynna bókina sína, Liverpool: The Complete Record. Þeir munu árita bókina með Liverpol-goðsögnunum Ron Yeats og Tommy Smith. Fréttablaðið/Vilhelm
asdf „Þetta er eiginlega tólf daga kynnisferð en við náum sem betur fer tveimur leikjum,“ segir Arngrímur Baldursson, þýðandi og annar höfunda bókarinnar Liverpool: The Complete Record. Hann er ásamt meðrithöfundi sínum, Guðmundi Magnússyni, farinn í mikla kynningarferð til Liverpool-borgar þar sem þeir ætla að kynna bókina sína. Þeir eru búnir að leigja íbúð í miðborg Liverpool undir sig og sína og munu í kjölfarið sinna viðtölum við sjónvarpsstöðvar, útvarp, dagblöð og netmiðla. Bókin Liverpool: The Complete Record inniheldur upplýsingar um alla leiki knattspyrnuliðsins Liverpool frá árinu 1892. Bókin hefur þegar komið út í London en nú er komið að Liverpool og þá á að leggja allt í sölurnar. Arngrímur og Guðmundur árita meðal annars bókina í dag í Waterstones, sem er ein stærsta bókabúð Liverpool. Með þeim við áritunarborðið sitja goðsagnirnar Ron Yeats, sem er sá leikmaður sem hefur gegnt fyrirliðastöðu liðsins lengst allra, og Tommy Smith. Að sögn Arngríms er Smith einn allra harðasti varnarmaður félagsins frá upphafi. „Hann átti það til að tækla menn í herðar niður.“ Svo skemmtilega vill til að Liverpool mætir einmitt erkifjendunum frá Manchester United á Anfield í hádeginu og Arngrímur ætlar að sjálfsögðu á leikinn. „Það reyndist hins vegar þrautin þyngri að fá miða og ég grenjaði þá eiginlega út hjá miðasölunni,“ segir Arngrímur og hlær. - fggasdf
Mest lesið Stjörnulífið: Sjóðheitar í gusugufu Lífið Eyþór Arnalds og Ástríður bíða eftir barni Lífið Flestir fróa sér til viðbótar við kynlíf með maka Lífið Borðtennisspaðar fóru tómhentir af BAFTA-hátíðinni Bíó og sjónvarp Sneri lífi sínu við eftir að faðir hans fyrirfór sér Lífið Frægðin steig Magna til höfuðs en aðeins í skamma stund Lífið Forstjórinn sem fór á atvinnuleysisbætur Áskorun Minnist sonar síns og styður við börn í sorg Lífið Fékk yfir hundrað skilaboð á dag Lífið Yfirgefinn apaungi finnur huggun í apabangsa úr Ikea Lífið Fleiri fréttir Sneri lífi sínu við eftir að faðir hans fyrirfór sér Eyþór Arnalds og Ástríður bíða eftir barni Stjörnulífið: Sjóðheitar í gusugufu Flestir fróa sér til viðbótar við kynlíf með maka „Hugurinn skiptir öllu máli“ Við erum tengdari en nokkru sinni en höfum aldrei verið jafn einmana Fékk yfir hundrað skilaboð á dag Krakkatía vikunnar: Bollur, sólmyrkvar og skilti Yfirgefinn apaungi finnur huggun í apabangsa úr Ikea Áhorfið rýkur upp þegar minnst er á Ísland Frægðin steig Magna til höfuðs en aðeins í skamma stund Minnist sonar síns og styður við börn í sorg Fréttatía vikunnar: Lilja, eitur og krulla Bleikar kollur, gellur og gaurar Einn sá efnilegasti ætlar að verða sá fyrsti inn á Ólympíuleika Halla Vilhjálms flutt í Fossvoginn Á leið á flugvöllinn þegar fluginu var flýtt Hitti Gísla á Uppsölum á skyggnilýsingafundi Frá einni ofurbombu til annarrar Eric Dane er látinn Þeim fjölgar sem skilja Íslensk Barbí og Ken: „Litaði bara hárið og fór í sprey-tan“ Vigdís og Gerald Häsler selja húsið Nýtt verk frá Martin en samt kvarta aðdáendur Falsmyndir af sólmyrkva vella fram: „Gervigreindin er plága“ Ekkja Hefners varar við birtingu nektarmynda úr dagbókum hans Verður alltaf meyr þegar hann hugsar um lífsbjörgina „Við löbbum ekki bara og hrösum um Esjuna“ Í sárum yfir brandara um hrossatyppi Sungið, saumað og sprellað á öskudaginn Sjá meira