Braskað með miða á Airwaves 15. október 2011 06:00 Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Iceland Airwaves, hefur séð miða á hátíðina auglýstan á fjörutíu þúsund krónur. „
Mér er illa við þetta því fólk veit yfirleitt ekki hvað það er að kaupa, það getur verið ákaflega svekkjandi að vera kominn á tónleikastað og uppgötva að maður hafi keypt köttinn í sekknum fyrir tugi þúsunda,“ segir Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Airwaves-hátíðarinnar. Á vefsíðunni bland.is er að finna 164 auglýsingar þar sem armbönd á tónlistarhátíðina eru auglýst til sölu. Fyrsta auglýsingin var sett inn fyrir tuttugu dögum og eftir það fór þeim ört fjölgandi. Fyrstu söluaðilarnir reyndu að hagnast á miðasölunni og seldu armböndin fyrir meira en 20 þúsund krónur en venjulegur miði kostaði í kringum 16 þúsund í forsölu. Grímur segist hafa séð á netinu miða auglýstan fyrir fjörutíu þúsund en vissi þó ekki hvort sá miði hefði selst. Þá hefði starfsfólk hátíðarinnar lagt gildru fyrir aðila sem reyndi að selja forgangspassa á netinu. Eftir að hátíðin hófst ber hins vegar meira á því að fólk vilji losa sig við miðana og fá einhvern smáaur tilbaka. Þetta er þá fólk sem á ekki heimangengt af einhverjum orsökum. Grímur varar hins vegar við þessu og segir að þau vilji auðvitað helst að endursala á armböndunum væri ólögleg. „En þetta er bara lífið, maður leggur ekki niður almannabótakerfið af því að það eru nokkrar hræður að reyna að svindla á kerfinu.“ - fgg
Mest lesið Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Lífið „Hef engar áhyggjur af því hvað þeim finnst“ Tíska og hönnun Glæný stikla úr Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu Lífið „Ég mun aldrei treysta því að kerfið passi upp á son minn“ Lífið Héldu annað brúðkaup í leyni á sveitasetri í Surrey Lífið Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Lífið Veðurvélin á leið á Hellissand fyrir almyrkvahátíð Tónlist Hefja framleiðslu á framhaldsmynd um Michael Jackson Bíó og sjónvarp „Ekki hægt að horfa á neitt annað en brjóstin á þér“ Lífið Fleiri fréttir „Við nýtum tækifærið og ræðum lífið og tilveruna“ Héldu annað brúðkaup í leyni á sveitasetri í Surrey Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu „Ég mun aldrei treysta því að kerfið passi upp á son minn“ Hringar bendi til þess að Hadid og Cooper hafi gift sig Inga Sæland orðin eldri borgari: „Mér finnst ég alltaf vera bara tvítug“ Mikkel Hansen og Guðlaugur Victor í stuði hjá 66°Norður „Ekki hægt að horfa á neitt annað en brjóstin á þér“ „Hún er í hljóðverinu núna“ Hvað veistu um… One Direction? Dorrit um tíðindin: „💦💦💦💦💦💦“ Sankað að sér milljónum fylgjenda á tíu ára ferli Hvað er í gangi á Svalbarða? Hefur „ekki hugmynd um hvað er í gangi“ en kemur Grande samt til varnar Good Morning America í beinni frá Bláa lóninu á almyrkva Perez Hilton fluttur á spítala eftir sjálfsskaða í beinu streymi Sonur Mari og Njarðar fæddur Líkamlega lemstruð og fötin í rúst en vel þess virði Leiðir skilja hjá Ólafi Ragnari og Dorrit „Ég vil vera bestur í öllu“ Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“ Opnar sig um þunglyndi og depurð Gummi Google selur glæsihús á Grímshaga Fyrsta platan í tuttugu ár Stjörnulífið: Heiðdís Rós komin heim Myndaveisla: Stjörnufans fyrir norðan á Einni með öllu „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Sjá meira