Lífið

Vinnan í fyrsta sæti

Michael Fassbender er of upptekinn við vinnu til að stofna til fjölskyldu.
Michael Fassbender er of upptekinn við vinnu til að stofna til fjölskyldu. nordicphotos/getty
Leikarinn Michael Fassbender greindi frá því nýverið að hann hafi ekki áhuga á því að stofna fjölskyldu í nánustu framtíð.

Fassbender sagðist vera of upptekinn við vinnu að svo stöddu til að geta gefið sér tíma til að sinna konu og börnum. „Ætti ég fjölskyldu mundi ég geta haft þau í fyrsta sæti. Þessa stundina er starfið mitt mér mjög mikilvægt og ég vil gefa allt mitt í það.“

Aðspurður sagðist leikarinn jafnframt kjósa að búa ekki í Los Angeles. „Ég er hræddur um það sem ég gæti orðið ef ég byggi of lengi í borginni.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.