Innlent

Þung umferð til höfuðborgarsvæðisins

Þung umferð var til höfuðborgarsvæðisins undir kvöld í gær og á tímabilinu frá klukkan fimm og fram á sjöunda tímann má segja að það hafi veri bíll við bíl alveg frá Litlu kaffistofunni og inn í borgina.

Röðin silaðist á um það bil 50 kílómetra hraða. Minni umferð var á Vesturlandsvegi, en þar mynduðust þó langar lestir. Að sögn lögreglunnar gekk allt vel þrátt fyrir þetta, og var ekki tilkynnt um nein slys eða óhöpp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×