Leikrit upp úr fornsögunum sýnt um allt Þýskaland 1. febrúar 2011 13:00 Þau Ugla Egilsdóttir, Dóri DNA og Bergur Ebbi ásamt þýsku ungskáldunum Noru Gomringer, Bas Böttcher og Finn-Ole Heinrich. Þau munu ferðast um allt Þýskaland með verk byggt á Íslendingasögunum. „
Nafnið á verkinu er mjög fyndin nálgun, það er fengið að láni frá Jóni Grunnvíkingi sem lýsti Íslendingasögunum svona, að þetta væru bændur að fljúgast á," segir Halldór Halldórsson, betur þekktur sem Dóri DNA. Dóri er hluti af sex manna teymi íslenskra og þýskra listamanna sem hafa sett saman verkið Bændur fljúgast á en það er innblásið af Íslendingasögunum. Í því er blandað saman tónlist, ljóðaflutningi og uppistandi sem eiga að birta Íslendingasögurnar í nýju og óvæntu ljósi. Fulltrúar Þýskalands eru þau Nora Gomringer, Bas Böttcher og Finn-Ole Heinrich. Ferðalagið hefst í mars en þá mun íslenska þríeykið, sem samanstendur auk Dóra af Bergi Ebba Benediktssyni og Uglu Egilsdóttur, ferðast um Ísland með hluta verksins. Í maí hittist síðan allur hópurinn í Bamberg í Þýskalandi og verður þar við æfingar en þaðan verður ferðinni heitið til München og svo á Listahátíð í Reykjavík. Botninn verður síðan sleginn í sýningaferðalagið á bókasýningunni í Frankfurt í október en þá verður verkið sýnt í helstu borgum og bæjum Þýskalands. Eins og kom fram í fjölmiðlum á síðasta ári ferðaðist þessi hópur um allt Ísland til að leita sér að innblæstri. „Við fórum hringinn, vorum á Njáluslóðum, hlustuðum á fyrirlestur um Snorra Sturluson og sóttum Skálholt heim. Og svo gistum við eina á nótt á Hala í Suðursveit," segir Dóri en Íslendingasögurnar voru honum ekkert lokuð bók því hann hefur verið einlægur aðdáandi þeirra um langt skeið. „Við Bergur erum svolítið með þær á heilanum; Bergur er með texta upp úr Fóstbræðrasögu húðflúraðan á sig og Ugla hefur líka mikið verið að pæla í þeim," segir Dóri en ekki er hægt að líta framhjá skyldleika þessa verkefnis og Gerplu sem afi Halldórs og nafni, Halldór Kiljan Laxness, skrifaði. „Ég held samt að ég hafi ekkert verið valinn í þetta út af henni. Maður hefur samt auðvitað lesið hana." Dóri hefur nú verið búsettur í Þýskalandi í hálft ár og kann vel við sig meðal Þjóðverja, hann sé meðal annars farinn að reyna fyrir sér á þýsku. „Við Bergur erum að skrifa sjónvarpsþátt sem verður tekinn upp í sumar með Mið-Íslandi þannig að það verður bara ágætt að komast út í lönd og fá smá frí frá því þegar að þessu kemur." freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Fleiri fréttir Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Sjá meira