Lífið

Klaufaleg lygi og hamingja

Jennifer Aniston leikur aðstoðarkonu Adams Sandler í þessari hressu gamanmynd.
Jennifer Aniston leikur aðstoðarkonu Adams Sandler í þessari hressu gamanmynd.
Auk vestrans True Grit verða þrjár nýjar myndir frumsýndar í bíó á morgun. Just Go with It er gamanmynd með Adam Sandler og Jennifer Aniston í aðalhlutverkum. Sandler leikur lýtalækni sem fellur fyrir mun yngri og sérlega glæsilegri konu. Hann fær aðstoðarkonu sína (Aniston) til að þykjast vera fyrrverandi kona hans til að breiða yfir klaufalega lygi. Lygin um eiginkonuna verður að lygi um að þau eigi tvö börn saman og fljótlega fer allt úr böndunum.

Another Year, nýjasta mynd Bretans Mike Leigh, er tilnefnd til Óskarsins fyrir besta frumsamda handritið. Myndin segir frá eldri hjónum sem hefur tekist að varðveita hamingjuna í sambandinu. Þau eru umkringd vinum og fjölskyldumeðlimum sem eru ekki jafn heppnir og þau og eiga erfiðara með að finna hamingjuna. Á einu ári er fylgst með hjónunum ganga í gegnum árstíðarnar fjórar með vinum og vandamönnum. Með aðalhlutverk fara Jim Broadbent, Lesley Manville og Ruth Sheen.

Teiknimyndin Jógi björn fjallar um björninn skemmtilega og hans ævintýri. Samnefndar teiknimyndir hafa notið mikilla vinsælda í sjónvarpinu um árabil og hlýtur yngri kynslóðin því að taka þessari kvikmynd fagnandi.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.