Fimm uppáhaldskjólar Rakelar Mjallar 4. nóvember 2011 13:00 Rakel Mjöll í fyrsta kjólnum. Fréttablaðið/Stefán
Rakel Mjöll Leifsdóttir, söngkona hljómsveitarinnar Útidúr, á marga fallega kjóla og þá sérstaklega sviðskjóla. Hún kveðst hrifnust af kvenlegum sniðum og segir uppáhaldsverslunina sína vera "vintage" búð sem hún rakst á í Pittsburgh.1. kjóll "Þennan kjól saumaði Ragna Sigríður Bjarnadóttir, vinkona mín, á mig fyrir Airwaves-hátíðina í ár. Hún er að læra fatahönnun við LHÍ og hefur saumað mikið á mig í gegnum árin. Ég klæddist þessum kjól þegar Útidúr kom fram í Iðnó og hann var hannaður sérstaklega fyrir það tilefni. Þetta er ekki kjóll sem ég mundi nota hversdags enda er þetta meira hugsað sem sviðskjóll."Annar kjóll. 2. kjóll „Kjólinn fékk ég í verslun Rauða krossins. Hann var miklu síðari og minnti svolítið á brúðarkjól en ég klippti helminginn af honum og nota svo hinn helminginn í annað. Þetta er kjóll sem ég nota aðeins á sviði, eini gallinn við hann er að ég á það til í að festa mig í strengnum á gítarnum hans Gunnars, sem er með mér í Útidúr, og hann hefur flogið í fiðlurnar líka."Þriðji kjóll. 3. kjóll „Þessi kjóll er eftir Mariu Cornejo, hönnuð frá Brooklyn. Hún hannaði þennan kjól á mig og annan eins á systur mína fyrir það þegar við komum fram í Carnegie Museum. Þetta er sannkallaður gyðjukjóll og hann er metinn á 200 þúsund krónur og mér þykir mjög vænt um hann. Ég hef klæðst honum í brúðkaup en þess utan hef ég lítið notað hann því hann er svo rosalega fínn."Fjórði kjóll. 4. kjóll „Þessi kjóll er líka úr smiðju Rögnu, vinkonu minnar. Þetta var Airwaves-kjóllinn árið 2009 og ég var í honum þegar ég kom fram með hljómsveitinni Sykur. Mér líður alltaf svolítið eins og Batman í þessum kjól því hliðin á honum er fest upp eins og vængur. Það kemur ofsalega vel út á sviði en virkar ekki jafn vel við önnur tækifæri. Ragna hefur hannað á mig kjóla allt frá því að ég var 16 ára gömul og tók þátt í söngvakeppnum."Fimmti kjóll. 5. kjóll „Þessi kjóll er frá árinu 1940 og ég keypti hann í „vintage" verslun í Pittsburgh. Ég og systir mín komum fram með Ragnari Kjartanssyni í Carnegie Museum og í heilan mánuð fengum við aðeins tvo frídaga, öðrum þeirra eyddum við í fyrrnefndri „vintage" búð. Elsta flíkin þar inni var frá 1880 og sú nýjasta frá 1980. Kjóllinn er í algjöru uppáhaldi bæði því að sniðið er svo fallegt og svo finnst mér efnið líka skemmtilegt. Sem betur fer fer ég aftur út í mars og þá ætla ég að kaupa meira í sömu búð."
Mest lesið „Hélt það væri ekki hægt að bjarga mér“ Lífið Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Lífið Krakkatía vikunnar: Kirkjur, Gljúfrasteinn og nornahár Lífið „Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“ Lífið Guðmundur og Erna eru gift Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Mörg þúsund „glataðir ljósmyndarar“ sóttu um Lífið Fögnuðu nýrri líkamsræktarstöð í Grímsbæ Lífið Fréttatía vikunnar: Sjúkrabíll, guðshús og koss dauðans Lífið Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Lífið Fleiri fréttir „Hélt það væri ekki hægt að bjarga mér“ Krakkatía vikunnar: Kirkjur, Gljúfrasteinn og nornahár Guðmundur og Erna eru gift Mörg þúsund „glataðir ljósmyndarar“ sóttu um „Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“ Fögnuðu nýrri líkamsræktarstöð í Grímsbæ Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Fréttatía vikunnar: Sjúkrabíll, guðshús og koss dauðans Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Birna María og Egill eignuðust dreng Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Sjá meira