Kjartan nýtur sín við kornrækt og ferðaþjónustu 14. janúar 2011 08:00 Kjartan Gunnarsson hefur stofnað ferðaþjónustufyrirtækið Bæjarbúið en hann hefur um árabil rekið Franska kaffihúsið á Rauðasandi. fréttablaðið/Stefán
Kjartan Gunnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins og formaður bankaráðs Landsbankans, hefur sinnt kornrækt og kaffihúsarekstri fyrir vestan undanfarin ár. Hann rær nú á ný mið í ferðaþjónustu. „Það er nú bara svoleiðis, þetta getur orðið á ýmsum stöðum,“ segir Kjartan Gunnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins og formaður bankaráðs Landsbankans. Hann hefur stofnað fyrirtækið Bæjarbúið sem er skráð á heimili þeirra Sigríðar Snævarr, eiginkonu hans, og er tilgangur þess búrekstur og ferðaþjónusta. Kjartan vildi lítið tjá sig um fyrirtækið í samtali við Fréttablaðið og var mjög leyndardómsfullur þegar hann var spurður nánar út í það. Hann hefur um árabil rekið Franska kaffihúsið á Rauðasandi og staðið fyrir mikilli uppbyggingu á því svæði, gerði meðal annars upp gamla ungmennafélagshúsið sem áður hýsti ungmennafélagið Von. Kjartan vildi hvorki játa né neita að hann væri að færa út kvíarnar. Hann viðurkennir hins vegar að ferðaþjónustan og sveitalífið hafi lengi blundað í honum og að hann kunni vel við sig út á landi. „Það er ekki æsinginum fyrir að fara þarna, það skilja allir þar að lífið gengur ekki út á æsing.“ Kjartan hefur einnig sinnt kornrækt í samvinnu við bændurna á svæðinu, ræktað bæði hafra og bygg sem notað er í bakstur og handa dýrum. „Kornrækt hefur aukist mjög, tvöfaldast og sums staðar þrefaldast á síðastliðnum árum. Menn hafa smám saman áttað sig á því að þetta væri hægt enda hefur veðrið verið svo gott.“ Landslagið á Rauðasandi þykir einstakt, staðurinn afmarkast af Stálfjalli í austri og Látrabjargi í vestri. Rauðisandur hefur notið sívaxandi vinsælda meðal innlendra og erlendra ferðamanna en sjálfur vill Kjartan ekki gefa upp hversu mikið hann dveljist þar. „Maður er þarna eftir þörfum, efnum og ástæðum.“ freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Skipta um stríðsguð vegna alvarlegra meiðsla Bíó og sjónvarp Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Lífið Olivia Rodrigo á Íslandi Lífið Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Lífið Grafalvarlegt nýtt efni: „Jafn tilgangslausar og að selja flugelda inni í helli“ Tónlist Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Lífið Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið Tónlist Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Lífið Óskarsverðlaunahafinn Brenda Fricker látin Bíó og sjónvarp Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Fleiri fréttir Olivia Rodrigo á Íslandi Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Sjá meira