Charlie Sheen drekkur eins og svín 13. janúar 2011 08:00 Charlie Sheen eyddi helginni í faðmi þriggja klámstjarna í Las Vegas og drakk vodka af stút. Hann mætti hins vegar galvaskur á tökustað eftir sukkið, samstarfsfólki hans til mikillar undrunar og gleði. Getty Images/NOrdic Photos
Síðasta helgi hjá Charlie Sheen virðist hafa verið með villtara móti eftir því sem bandarískir og breskir fjölmiðlar kafa dýpra ofan í sukksama veröld bandaríska leikarans. Hann var staddur í Las Vegas um helgina, sem er kannski ekki í frásögur færandi, nema ef vera kynni fyrir þá staðreynd að Charlie var viðstaddur stærstu klámmyndahátíð heims, AVN-Adult Entertainment Expo. Charlie kaus líka að hella sér af alvöru í sukk og stóðlífi, hellti í sig hverri vodkaflöskunni af fætur annarri á milli þess sem hann bauð klámmyndastjörnum í partí. Að sögn sjónarvotta var það nánast ótrúlegt að horfa á drykkju Charlie milli þess sem hann skjallaði hina ljóshærðu fullorðinsmyndastjörnu Bree Olson upp úr skónum. Þrátt fyrir að þau tvö væru augljóslega nokkuð skotin þá hurfu þau ekki einsömul upp á hótelherbergi heldur bauð Bree tveimur starfssystrum sínum úr fullorðinsbransanum með sér. Samkvæmt The Sun ku Sheen þó vera hrifinn af Bree, hann flaug meðal annars til heimabæjar hennar í Indiana um jólin og hitti hana þar. Charlie Sheen er án nokkurs vafa ein mesta sukkpadda Hollywood og hefur margsinnis komist í kast við lögin vegna drykkjuskapar og óláta. Samkvæmt heimildum vefsíðunnar TMZ mætti Charlie hins vegar eldhress í tökur á sjónvarpsþættinum Two and a Half Men eftir allt bílífið og lék og lét eins og ekkert hefði í skorist. „Hann virðist geta drukkið ótæpilegt magn af áfengi, hann er óseðjandi,“ hefur TMZ eftir heimildarmanni sínum á tökustað.
Mest lesið Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Stór brjóst eru stór Lífið Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Lífið „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Lífið Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Grái skilnaðurinn: Sífellt fleiri 50+ að skilja Áskorun Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Lífið Fleiri fréttir „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Oddvitaáskorun: Býr á Hellu en eiginmaðurinn í Belgíu Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Gummi Tóta og Guðbjörg keyptu á 145 milljónir Sjá meira