Lífið

Bættu í snyrtibudduna fyrir haustið

Frísklegt Í haust þykir fallegast að vera sem náttúrulegastur í útliti og með rjóðar kinnar.
Frísklegt Í haust þykir fallegast að vera sem náttúrulegastur í útliti og með rjóðar kinnar. Nordicphotos/Getty
Haustið er komið og kuldanum fylgir gjarnan þurr húð og sprungnar varir. Til að geta notið fallegra haustdaga er því ráð að maka á sig góðum kremum til að halda húð og hári mjúku og vel nærðu á þessum myrkustu mánuðum ársins.

1. Hárnæring

Þegar kólnar í veðri þarf að hugsa sérstaklega vel um húð og hár. Hárnæringin Damage Daily Hair Repair frá Aveda gefur hárinu prótín og gerir við skemmt hár.

2. Handáburður

Góður handáburður er nauðsynlegur í haust og vetur til að koma í veg fyrir þurrar hendur og sprungna húð. Handáburðurinn frá L‘Occitane inniheldur meðal annars shea butter sem nærir og mýkir húðina.

3. Naglalakk

Þótt blómin séu fölnuð þýðir það ekki að næstu mánuðir þurfi að vera litlausir. Málið neglurnar í öllum regnbogans litum og lífgið þannig upp á kalda haustdaga. Litavalið hjá Opi er mikið og fallegt.

4. Líkamskrem

Á veturna er meiri hætta á að húðin verði þurr eftir sturtuferðirnar og þess vegna er mikilvægt að eiga gott krem til að bera á líkamann. Líkamskremið frá L‘Occitane gefur húðinni fullkominn raka.

5. Varasalvi

Það þekkja allir óþægindin sem fylgja því að vera með þurrar og sprungnar varir. Komið í veg fyrir varaþurrk með góðum varasalva, þessi frá Clinique er bæði rakagefandi og með fallegum lit.

6. Andlitskrem og farði

Nýi farðinn Matchmaster frá Mac gefur húðinni náttúrulegt yfirbragð og ver um leið húðina í frostinu. Einnig er kremið Fortified Skin EnchancerIlluminateur flott eitt og sér og líka undir farðann en kremið gefur húðinni fallegan gljáa.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.