Listfræðinemar stofna gallerí 7. desember 2011 16:00 Viktoría og félagar eru himinlifandi með góðar móttökur við framtakinu. „
Okkur hefur verið tekið opnum örmum," segir Viktoría Jóhannsdóttir Hjördísardóttir, listfræðinemi og einn stofnenda hins glænýja Artíma gallerís. Listfræðinemar við Háskóla Íslands tóku sig til á haustmánuðum og opnuðu nýtt gallerí, sem þeir sjá sjálfir alfarið um að reka. „Listfræðin er tiltölulega nýtt nám hjá HÍ og það hefur í raun vantað verklegt nám inn í námið frá upphafi. Þessi hugmynd hefur verið til lengi en alltaf bara á því stigi. Í haust var svo bara rétta fólkið á rétta staðnum og við ákváðum að kýla á að opna gallerí." Rekstur gallerísins er þannig upp byggður að listfræðinemarnir fá að spreyta sig á sýningarstjórn og öllu því sem tengist uppsetningu á listasýningu og fá í leiðinni dýrmæta reynslu sem nýtist þeim í áframhaldandi námi og starfi. Nemendur Listaháskóla Íslands eru meðal þeirra sem hafa sýnt verk sín í salnum, en mikil vöntun hefur verið á sýningarrými fyrir ungt listafólk. Viktoría segir viðtökurnar hafa verið framar björtustu vonum. „Það var mikil þörf fyrir þetta, við fundum það um leið og fórum að ræða hugmyndina við fólk í myndlistargeiranum. Það sýnir sig líka í því að við erum búin að bóka sýningar fram í maí á næsta ári og mikill fjöldi fólks hefur sýnt þessu áhuga og mætt á þessar tvær sýningar sem við höfum verið með." Næsta sýning Artíma gallerís verður opnuð á föstudaginn kl. 17 og hvetur Viktoría allt listaáhugafólk til að leggja leið sína að Smiðjustíg 10 þar sem salurinn er til húsa. -bb
Menning Mest lesið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Adda og Alfreð eignuðust dreng Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Lífið Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Fleiri fréttir Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Sjá meira