Í gömlum húsbíl með hundi 1. júní 2011 11:00 Andri Freyr Viðarsson ferðast í gömlum húsbíl í sumar með hund í eftirdragi. Samsett mynd/Kristinn „
Þetta verður „spontant“, ferskt og skemmtilegt,“ segir útvarpsmaðurinn Andri Freyr Viðarsson. Hann stjórnar sínum fyrstu sjónvarpsþáttum í sumar, Andri á flandri, þar sem hann ferðast um landið á gömlum húsbíl. Eini ferðafélagi hans verður hundur sem er að sögn Andra „bara vinur“. „Það er gaman að komast aðeins frá stúdíóinu, ferðast um og kynnast landi og þjóð,“ segir hann. Þættirnir verða sex talsins og hefja göngu sína í Sjónvarpinu um miðjan júlí eftir að Kastljós fer í sumarfrí. Þeir verða nokkuð svipaðir ferðaþáttum Andra Freys og Ómars Ragnarssonar sem voru á Rás 2 í fyrra og nutu mikilla vinsælda. „Núna þarf maður að gera þetta allt sjálfur. Ólíkt Ómari veit ég ekkert um þetta. Maður verður örugglega villtur úti í vegarkanti á bíl sem er nýbúinn að bræða úr sér og sprungið á honum. En þetta verður ævintýri,“ segir hann hress. Ómar Ragnarsson stýrði á sínum tíma þáttunum Stiklum, þar sem hann ferðaðist um landið og hitti alls konar fólk, margt ansi skrýtið. „Þetta verða Stiklur yngri kynslóðar,“ segir Andri Freyr um nýju þættina. „Ég ætla bara að hitta áhugavert og skemmtilegt fólk. Það þarf ekkert endilega að vera skrýtið en það má alveg vera það.“ Andri gekkst nýverið undir aðgerð við brjósklosi, auk þess sem hann hætti að reykja fyrir þremur vikum. Hann er því hressari en nokkru sinni fyrr og til í slaginn í sumar. „Þetta er það auðveldasta sem ég hef gert,“ segir hann og skilur ekkert í fólki sem á erfitt með að hætta að reykja. - fb
Mest lesið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið Fjörutíu básar í garðinum og götumatur frá öllum heimshornum Matur David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Fleiri fréttir Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Sjá meira