Allar heimildir verði seldar á uppboðum 21. maí 2011 06:00 Hreyfingin vill að allar aflaheimildir verði boðnar upp innan sveitarfélaga.fréttablaðið/jse
Þingflokkur Hreyfingarinnar kynnti í gær frumvarp sitt til laga um stjórn fiskveiða. Þar er meðal annars gert ráð fyrir því að öllum aflaheimildum verði ráðstafað í gegnum uppboðskerfi sem á að tryggja að hámarksverð fáist fyrir nýtingarréttinn. Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, segir í samtali við Fréttablaðið að með þessu sé verið að koma til móts við kröfur almennings og auk þess verði hagkvæmni gætt. „Hagkvæmni er alltaf best tryggð með gegnsæi og samkeppni því fleiri sem keppa um hituna, því betra,“ segir Þór. „Þegar allir þurfa að kaupa aflaheimildir á uppboði kemur í ljós hvar hagkvæmustu veiðarnar eru.“ Allar heimildir verða samkvæmt því boðnar upp í sveitarfélögunum, en einnig hafa sveitarfélögin heimild til að selja heimildir til aðila utanbæjar, með tíu prósenta álagi á kaupverð. Þá skal allur sjávarafli seldur á innlendum markaði, en þó er heimilt að selja afla beint til innlendrar fiskvinnslu. Þá skal verð miðast við markaðsverð. Með því telur Hreyfingin að um 800 til 1.000 ný störf skapist við fiskverkun. Meðal annarra lykilatriða í frumvarpinu er ákvæði um stórauknar strandveiðar þar sem heildarafli verður 40.000 tonn af botnfiski og tímabil lengt um tvo mánuði frá því sem nú er. Þá verði allar skuldir sem útgerðir hafa stofnað til vegna kvótakaupa færðar inn í sérstakan kvótaskuldasjóð, sem muni greiðast niður með fimm prósenta hlut af söluandvirði veiðiheimilda. Aðspurður segir Þór að honum finnist þær hugmyndir sem fram koma í frumvarpi stjórnarinnar vera til málamynda. Þór segist vona að frumvarp Hreyfingarinnar verði lagt fyrir þjóðina samhliða stjórnarfrumvarpinu. „Við viljum að þjóðin fái alvöru valkosti í þessum efnum.“- þj
Mest lesið Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Skilorð fyrir að tvíkjálkabrjóta sambýliskonu sína Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Ríkisstjórnin í mun veikari stöðu eftir erfitt sumar Skora á yfirvöld að taka SÁÁ til skoðunar Sjá meira