Sóknarprestur hissa á hamingjuþætti 6. febrúar 2011 12:00 Séra Þórhallur var með hugmynd að þætti um hamingjuna, en Stöð 2 hefur sýningar á hamingjuþáttum í mars. „
Ég er ekki sár og ekki reiður, þetta er bara skrýtið. Það er svo langt síðan ég byrjaði með þetta," segir séra Þórhallur Heimisson, sóknarprestur í Hafnarfjarðarkirkju. Þátturinn Hamingjan sanna, eftir hugmynd Ásdísar Olsen og Karls Ágústs Úlfssonar, hefur göngu sína á Stöð 2 í mars. Fréttir af þáttunum komu Þórhalli í opna skjöldu þar sem hann hafði komið hugmynd að svipuðum þætti byggðum á bók sinni Hamingjuleitinni á framfæri til dagskrárstjóra Stöðvar 2 á síðasta ári. „Þeir voru mjög áhugasamir, en voru á leiðinni í frí þannig að við ætluðum að heyrast," segir Þórhallur. „Svo er þessi þáttur allt í einu kominn núna - ekki með mínu efni, heldur einhverju allt öðru. Það er ekki á nokkurn hátt verið að stela neinu frá mér." Þórhallur segist hafa fengið hugmyndina frá Svíþjóð, þar sem svipaðir þættir hafa verið á dagskrá. „Mér fannst þetta sniðugt eftir hrun vegna þess að það eru svo margir sem koma á hamingjunámskeið til mín og margir sem eru ekki hamingjusamir í dag," segir hann og ítrekar þó að þeim á Stöð 2 sé frjálst að vinna með þeim sem þeir vilja. „Ég var hissa á því að þeir skyldu ekki segja mér að þeir ætluðu að vinna með öðrum. En ég vona að þátturinn gefi fólki meiri bjartsýni. Þá er tilganginum náð." Pálmi Guðmundsson, framkvæmdastjóri dagskrársviðs 365, segir aldrei hafa staðið til að gera tvær hamingjuseríur, að minnsta kosti ekki á sama tíma. „Við höfðum ekki fundað né átt samtöl við séra Þórhall Heimisson um þáttahugmynd hans en móttekið einn tölvupóst um áhuga hans á sams konar þáttaröð," segir hann.- afb
Mest lesið Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Lífið „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Lífið Konur að fæða börn á bakinu ... fyrir karlmenn Áskorun Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið Lífið Björk treður upp í Hafnarfirði í sumar Tónlist Euphoria stjörnurnar gáfu ekkert eftir Tíska og hönnun Ólétt af fyrsta barni ári eftir andlát fyrrverandi Bíó og sjónvarp E.T. sýnd við lifandi undirleik Sinfó í Hörpu Lífið samstarf Pétur Geir opnar nýja vinnustofu með einkasýningu Menning Eftir á fyndið að vera stönguð niður af kind Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Aflýsa Wireless eftir að Kanye var meinað að fara til Bretlands Mos Def kemur fram í Gamla Bíó í maí Eftir á fyndið að vera stönguð niður af kind Ráðherrabarn komið í heiminn Furðubandið sem tryllti netið Móðir drengs í ofbeldissambandi opnar sig Offset skotinn við spilavíti í Flórída „Ekki óttast mistök, en vertu skíthrædd við eftirsjá“ Ye á Wireless: Styrktaraðilar hætta við og forsætisráðherrann blandar sér í málið Stjörnulífið: „Sannleikurinn er sexí“ Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 Sjá meira