Mugison kominn í sjö þúsund eintök 3. nóvember 2011 09:30 Jón Þór Þorleifsson ferjar Mugison og hljómsveitina í þessu ágæta farartæki með kerru sem er merkt tónleikaferðinni um Ísland. Hér er bandið við gripinn, frá vinstri eru Mugison, Þorbjörn Sigurðsson, hljómborðs- og gítarleikari, Guðni Finnsson bassaleikari og Arnar Þór Gíslason trommari. Fréttablaðið/stefán „
Þetta hefur gengið framar vonum. Við getum vel flutt út úr þessari fjörutíu fermetra íbúð þegar þessi túr er búinn, ekki að það sé ekki notalegt að vera í sumarbústað í hjarta Reykjavíkur. En annars er ég náttúrlega aldrei heima, ég verð eiginlega að spyrja Rúnu hvernig þetta sé eiginlega,“ segir Örn Elías Guðmundsson, best þekktur sem Mugison. Hann þeysist nú um landið á bílaleigubíl frá Hertz ásamt hljómsveitinni sinni og Jóni Þór Þorleifssyni en Mugison lýsir honum sem sálfræðingi, rútubílstjóra og miðasöludömu hópsins. Auk þess situr Jón Þór við stýrið og kemur sveitinni lipurlega á áfangastaði, nánast hnökralaust hingað til með kerru merktri tónleikaferðalaginu. „Ég mátti ekki keyra, ég er ekki nógu gamall til þess þannig að Jón stökk inn.“ Plata Mugison, Haglél, hefur mælst feikilega vel fyrir, hann hefur þegar föndrað tíu þúsund eintök og þau eru öll farin út úr húsi. „Ég hef örugglega selt sjö þúsund og er búinn að panta sjö þúsund til viðbótar.“ Heildarupplagið verður því sautján þúsund eintök en til gamans má nefna að Mugiboogie er söluhæsta plata Mugison hér á landi, hún seldist í tíu þúsund eintökum í jólavertíðinni. „Og hún er ekki einu sinni byrjuð núna,“ segir hann, kampakátur. Það hefur líka verið uppselt á alla tónleikana, meira að segja á Akranesi. „Mitt fyrsta gigg á ferlinum var þar og þá mættu sex, allt ættingjar. En núna var fullt út úr dyrum og það var virkilega góð tilfinning.“ Tónlistarmaðurinn hefur þegar heimsótt Norðurland og Suðurland og er á leið austur um helgina. Hann segir það síður en svo lýjandi að keyra allar þessar vegalengdir nánast hverja einustu helgi. Og þetta reyni ekkert á vinskapinn. „Nei, þetta er meira eins og útskriftarferð, við borðum góðan mat, förum saman í sund og spilum, þetta er bara fáránlega næs.“ Bassaleikarinn Guðni Finnsson sé meira að segja byrjaður að fara með gamanmál. „Við höfum spilað saman í sex ár og ég hef alltaf beðið hann um að segja brandara þegar ég stilli gítarinn. En hann hefur aldrei orðið við þeirri bón fyrr en nú. Og þetta eru þvílíkar langlokur.“ Tónlistarmaðurinn gefur sér einnig góðan tíma til að árita geisladiskana sem rjúka út eins og heitar lummur eftir tónleikana. En hann viðurkennir að hann ætli að taka sér algjört frí frá spilamennsku í janúar. Þá fer hann og sinnir náminu í Listaháskólanum sem varð þess valdandi að hann flutti með fjölskylduna suður. „Og svo ætla ég að vinna að mirstrument-plötu með hljóðfærinu mínu.“ freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Fleiri fréttir Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út Sjá meira