Ísak í ævintýraferð í New York 3. nóvember 2011 10:00 Förðunarfræðingurinn Ísak Freyr Helgason er nýkominn heim eftir tveggja mánaða dvöl í New York, þar sem hann farðaði meðal annars fyrir tískuritið Elle og fatamerkið threeASFOUR.fréttablaðið/HAG „
Það var alveg sjúklega gaman og ég er algjörlega ástfanginn af borginni,“ segir förðunarfræðingurinn Ísak Freyr Helgason, sem er nýkominn heim eftir tveggja mánaða dvöl í New York. Ísak hélt utan í ævintýraleit og til að kanna tískubransann úti, en hann datt beint inn í tískuvikuna í New York. Þar farðaði hann meðal annars fyrir sýningu bandaríska fatamerkisins threeASFOUR og aðstoðaði Andreu Helgadóttur förðunarmeistara, sem meðal annars sér um förðun Bjarkar Guðmundsdóttur og hefur búið og starfað í New York lengi. „Það var frábært að koma og geta verið með Andreu. Ég leigði mér meira að segja íbúð fyrir neðan hana í Williamsburg í Brooklyn, sem var æði,“ segir Ísak, en hann fór meðal annars með Andreu í myndatöku fyrir tískutímaritið Elle. „Það var mikil upplifun fyrir mig að fá að vera með Andreu og hún vildi helst ekki að ég færi aftur heim,“ segir Ísak og bætir við að hann hafi notið sín vel úti. „Ég kom eiginlega beint frá dönsku tískuvikunni og þrífst mjög vel í stressinu sem myndast baksviðs á sýningum. Það er svo mikið adrenalínkikk og ég ætla að reyna að fara aftur út á næsta ári til að þræða tískuvikurnar.“ Ísak heillaðist af New York og getur vel hugsað sér að búa þar en það er einnig brjálað að gera hjá honum hérna heima. „Ég er búinn að bóka mig í fullt af myndatökum næstu mánuði en langar mikið að fara aftur út. Það er aldrei dauður tími í New York og alltaf eitthvað að gerast. Maður getur alveg vanist því.“- áp
Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Fleiri fréttir Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út Sjá meira