Frægir tökustaðir kortlagðir 24. september 2011 12:00 Eysteinn Guðni Guðnason við tökustað gamanmyndarinnar Perlur og svín þar sem bakaríið var til húsa. fréttablaðið/vilhelm
Hægt er að finna tökustaði íslenskra og erlendra bíómynda á síðunni Kvikmyndir.is með aðstoð Google Maps. „Kominn tími til að deila þessu á netinu," segir Eysteinn Guðni Guðnason. Til stendur að hafa yfirlit yfir tökustaði allra bíómynda sem hafa verið teknar hér á landi á síðunni Kvikmyndir.is og er sú vinna í fullum gangi um þessar mundir. Með aðstoð forritsins Google Maps er nú þegar hægt að sjá hvar tökur fjölmargra mynda fóru fram og um leið skoða ljósmyndir úr þeim. Þar má nefna Batman Begins, Sódóma Reykjavík, Die Another Day og Flags of Our Fathers. Eysteinn Guðni Guðnason á veg og vanda að þessu verkefni og hefur eytt miklum tíma í gerð þess. „Ég fór til Túnis og var að skoða tökustaði Star Wars. Það var mjög gaman og maður upplifði bíómyndina öðruvísi þegar maður var búinn að fara á staðina," segir Eysteinn Guðni. „Maður hefur oft verið að leita að tökustöðum hérna heima, til dæmis að bakaríinu þar sem Perlur og svín var tekin upp og fossinum í endanum á Sódómu Reykjavík. Það hefur enginn verið að veita þessar upplýsingar og maður þarf að grúska til að finna þetta. Mér fannst kominn tími til að deila þessu á netinu," segir hann og nefnir einnig tökustaði Nóa albínóa á Vestfjörðum, Dalalífs í Hvalfirði og fleiri mynda. Eysteinn Guðni greinir frá að mikill áhugi sé á tökustöðum þekktra erlendra mynda úti í heimi. Til dæmis er mikill iðnaður á Nýja-Sjálandi í kringum tökustaði Lord Of The Rings-þríleiksins. „Þetta vantar hérna á Íslandi," segir hann og bætir við að skemmtilegur ratleikur verði haldinn hér á landi á næsta ári bæði fyrir íslenska og erlenda kvikmyndaáhugamenn. „Fólk er að koma til Íslands til að skoða hvar Hrafninn flýgur var tekin upp. Ég veit að fólk kemur til landsins beinlínis af því að það kynntist Íslandi í gegnum kvikmyndir." Á annað hundrað innlendra og erlendra bíómynda hafa verið teknar upp á Íslandi og bætist jafnt og þétt í hópinn. Þar má nefna Prometheus í leikstjórn Ridleys Scott og væntanlega mynd Bens Stiller, The Secret Life of Walter Mitty. Alla tökustaðina verður hægt að sjá á Kvikmyndir.is en vefsíðan hefur nú tekið miklum breytingum. Fréttaskrifin eru örari og útlitið aðgengilegra auk þess sem síðan er sú eina á landinu með yfirlit yfir sýningartíma allra kvikmyndahúsanna. freyr@frettabladid.is
Mest lesið „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Lífið Steiney frumsýnir kærastann Lífið Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Lífið Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Lífið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Fleiri fréttir Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Sjá meira