Orðið þreyta ekki til í orðaforðanum 24. september 2011 11:00 Kameron Bink danskennari er ein af stjörnunum úr So You Think You Can Dance 2007. Fréttablaðið/Vilhelm „
Það var reyndar tilviljun að ég skyldi koma hingað í júní. Samstarfsmaður minn sem ætlaði að koma hætti við og ég hljóp í skarðið. Það gekk ótrúlega vel og fólk virtist njóta tímanna hjá mér og ég naut þess að kenna íslensku krökkunum. En þetta var bara ein helgi og mig langaði til að upplifa Ísland almennilega þannig að þegar Nanna hringdi og bauð mér að koma aftur kom ekki annað til greina en að slá til," segir Kameron Bink, danskennari, einn af stjörnunum úr So You Think You Can Dance 2007, sem kennir hjá Dance Center Reykjavík nú á haustmánuðum. Kameron hefur verið önnum kafinn við að kenna dans síðan hann tók þátt í dansþættinum vinsæla og ferðast um allan heim í því augnamiði. „Ég flutti til New York strax eftir þættina og hef búið þar síðan og æft dans. Þættirnir gerðu mig það þekktan að ég hef verið eftirsóttur sem kennari allar götur síðan. Kennt mikið í Ástralíu, Suður-Afríku, Skotlandi og fleiri stöðum sem ég hefði aldrei komið til annars." Er þessi stöðugi flækingur ekki þreytandi? „Ef ég á að vera hreinskilinn þá tekur þetta dálítið á. Ég var 21 árs þegar ég tók þátt í SYTYCD og þá hafði maður endalausa orku. Nú er ég 25 ára og er farinn að finna fyrir því að þetta tekur sinn toll. En þetta er það sem ég vil gera og ég nýt þess í botn, þannig að ég er búinn að eyða orðinu þreyta úr mínum orðaforða," segir Kameron hlæjandi. fridrikab@frettabladid.is
Mest lesið Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Lífið „Hef engar áhyggjur af því hvað þeim finnst“ Tíska og hönnun Glæný stikla úr Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Þetta táknar flæmingi Páls Óskars: „Kommentakerfið logar af fólki sem talar eins og 1986“ Lífið Héldu annað brúðkaup í leyni á sveitasetri í Surrey Lífið Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu Lífið Sækir um sem kærasti með nýju húðflúri Bíó og sjónvarp „Ég mun aldrei treysta því að kerfið passi upp á son minn“ Lífið „Við nýtum tækifærið og ræðum lífið og tilveruna“ Lífið Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Lífið Fleiri fréttir Þetta táknar flæmingi Páls Óskars: „Kommentakerfið logar af fólki sem talar eins og 1986“ „Við nýtum tækifærið og ræðum lífið og tilveruna“ Héldu annað brúðkaup í leyni á sveitasetri í Surrey Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu „Ég mun aldrei treysta því að kerfið passi upp á son minn“ Hringar bendi til þess að Hadid og Cooper hafi gift sig Inga Sæland orðin eldri borgari: „Mér finnst ég alltaf vera bara tvítug“ Mikkel Hansen og Guðlaugur Victor í stuði hjá 66°Norður „Ekki hægt að horfa á neitt annað en brjóstin á þér“ „Hún er í hljóðverinu núna“ Hvað veistu um… One Direction? Dorrit um tíðindin: „💦💦💦💦💦💦“ Sankað að sér milljónum fylgjenda á tíu ára ferli Hvað er í gangi á Svalbarða? Hefur „ekki hugmynd um hvað er í gangi“ en kemur Grande samt til varnar Good Morning America í beinni frá Bláa lóninu á almyrkva Perez Hilton fluttur á spítala eftir sjálfsskaða í beinu streymi Sonur Mari og Njarðar fæddur Líkamlega lemstruð og fötin í rúst en vel þess virði Leiðir skilja hjá Ólafi Ragnari og Dorrit „Ég vil vera bestur í öllu“ Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“ Opnar sig um þunglyndi og depurð Gummi Google selur glæsihús á Grímshaga Fyrsta platan í tuttugu ár Stjörnulífið: Heiðdís Rós komin heim Myndaveisla: Stjörnufans fyrir norðan á Einni með öllu „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Sjá meira