Lífið

Íslenski dansflokkurinn fær lof í Austurríki

Mynd/Heiða Helgadóttir
Íslenski dansflokkurinn hefur hlotið mikið lof gagnrýnenda fyrir frammistöðu sína á danshátíð í Linz í Austurríki í síðastliðnum mánuði. ÍD sýndi tvö ólík verk á hátíðinni; Grossstadtsafari eftir Norðmanninn Jo Strömgren og Endastöð eftir Svíann Alexander Ekman.

 

Blaðamaður Tips Total Regional sagði dansara flokksins búa yfir mikilli tæknilegri kunnáttu, þokka og sterkum persónuleika. Blaðið OÖNachrichten gaf sýningunni fimm stjörnur af sex og og gagnrýnandi Kronen Zeitung hrósaði Endastöð fyrir að vera bráðfyndið.

 

ÍD verður á faraldsfæti í júní og sýnir Svaninn eftir Láru Stefánsdóttir í Dornbirn í Austurríki og nýjan dúett eftir Katrínu Hall á Aids Gala Dinner í München í Þýskalandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.