Tvær bækur til Bandaríkjanna 20. maí 2011 18:00 Forlagið Macmillan hefur tryggt sér útgáfuréttinn á tveimur bókum Yrsu Sigurðardóttur.
Forlagið Macmillan sem er meðal annars með bækistöðvar í Bandaríkjunum hefur tryggt sér útgáfuréttinn á tveimur bókum Yrsu Sigurðardóttur, Auðninni og Ég man þig þar í landi. Áður hafði forlagið fest kaup á Ösku, sem er væntanleg á markað á þessu ári. „Þetta er svo hrikalega erfiður markaður í Ameríku. Það að komast inn með bók er frábært, hvað þá að vera gefinn út reglulega, sem er meiriháttar afrek,“ segir Pétur Már Ólafsson, útgefandi hjá Bjarti og Veröld. Yrsa bætist þar með í hóp Arnaldar Indriðasonar og Ólafs Jóhanns Sigurðssonar, sem hafa báðir verið gefnir út reglulega í Bandaríkjunum. Auðnin kom út árið 2008 á Íslandi og hefur selst í um sautján þúsund eintökum. Ég man þig, sem kom út fyrir síðustu jól, hefur selst í hátt í tuttugu þúsund eintökum. Sigurjón Sighvatsson hefur keypt kvikmyndaréttinn að síðarnefndu bókinni, eins og Fréttablaðið hefur sagt frá, og þessi útgáfa hennar í Bandaríkjunum á vafalítið eftir að ýta undir áhugann á myndinni. Aðspurður segist Pétur Már ekki vita í hve mörgum eintökum Ég man þig verður gefin út. Það gæti verið allt frá tíu þúsund eintökum upp í hundrað þúsund. Yrsa tekur um þessar mundir þátt í Crimefest, mikilli glæpasagnahátíð í Englandi þar sem fjöldi rithöfunda, einkum breskra, stígur á stokk. Þar kemur hún tvisvar fram í pallborðsumræðum í dag.- fb
Mest lesið Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Lífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Lífið Leiðir skilja hjá leikhúspari Lífið Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Lífið Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Menning Lifandi menning í hjarta Hafnarfjarðar Lífið samstarf Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Lífið Fleiri fréttir Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Sjá meira