Útgefandi lærir íslensku í HÍ 7. febrúar 2011 20:00 Óttar Felix á heimavelli íslenskunnar innan um handritin í Árnagarði þar sem hann stundar sitt nám. fréttablaðið/gva
Útgefandinn og tónlistarmaðurinn Óttar Felix Hauksson hefur í mörg horn að líta. Auk þess að skipuleggja stórtónleika í tilefni sjötugsafmælis Bobs Dylan í Hörpunni eins og Fréttablaðið greindi nýlega frá, stundar hann fullt nám í íslensku við Háskóla Íslands. „Ég er langelstur. Kjarninn eru krakkar sem eru fjörutíu árum yngri,“ segir Óttar Felix um íslenskunámið en hann er 61 árs. Óttar lauk námi í matvælatæknifræði í Danmörku árið 1988 og rak í framhaldinu verksmiðjuna Kjarnavörur í ellefu ár. Eftir það söðlaði hann um og stofnaði útgáfufyrirtækið Zonet. Hann hefur haft mikinn áhuga á íslensku í mörg ár og fannst rétti tímapunkturinn að hefja námið núna í haust. „Ef maður setur málband á borðplötu, hefur það 85 til 90 cm langt, er með puttann á sextíu og kíkir hvað er eftir þá er það bara stubbur. Þannig að maður verður að nýta tímann vel og gera það sem mann langar að gera og hafa gaman af lífinu,“ segir hann. „Ég hef alltaf haft mjög gaman af bæði íslenskri málfræði og íslenskum bókmenntum.“ Óttar er fullviss um að námið eigi eftir að nýtast vel í tónlistarútgáfunni, bæði í sambandi við kynningarefni sem hann sendir til fjölmiðla og textann sem hann skrifar inn í hin ýmsu plötuumslög. - fb
Mest lesið Afþakka miðann til Vínar vinni þeir undankeppnina Tónlist Hvert er mest óþolandi orð íslenskunnar? Menning Heigulsleg ákvörðun Rúv, hörundsárir listamenn og versta bók flóðsins Menning Róbert hættur við að mæta í hlaðvarp vegna viðtals við Albert Lífið Klámleikkona slapp með sekt og brottvísun Lífið Framkvæmdastjóri Eurovision bregst við ákvörðun Íslands Lífið Íslenskt La(m)bubu úr gæru, soðnu kindahorni og fiskaugum Tíska og hönnun Sigurvegari Eurovision skilar bikarnum Lífið Svipt krúnunni eftir að hafa gert sig skáeygða Lífið Sigurður Sævar fyllti Landsbankahúsið Menning Fleiri fréttir Klámleikkona slapp með sekt og brottvísun Grunaði strax að ókunnugur maður væri faðir vinkonu sinnar Róbert hættur við að mæta í hlaðvarp vegna viðtals við Albert Sannir Finnar lýsa yfir stuðningi við slaufuðu fegurðardrottninguna Innlit í glænýja mathöll í Smáralindinni Hanskar Gunna Nels, árituð ManU-treyja og Elli Egils á uppboði Húsið fallega í Eyjum komið langt á veg Sigurvegari Eurovision skilar bikarnum Krökkt af kempum í útgáfuhófi Óla Jó Framkvæmdastjóri Eurovision bregst við ákvörðun Íslands Svipt krúnunni eftir að hafa gert sig skáeygða Spígsporandi górilla á fyndnustu dýralífsmynd ársins Tóku áskoruninni og Joey Christ sver af sér sviðsetningu Opnar sig loksins um sambandið umtalaða Þetta þykja flottustu jólaskreytingarnar í miðborginni Listaverkin í World Class sem gjarnan hafa verið á milli tannanna á fólki Hvert er burðarþol íslensks almennings fyrir kjaftæði? Sjö tilnefndir til Íslensku þýðingarverðlaunanna Stærstu stjörnubrúðkaupin á árinu Skorar HúbbaBúbba á hólm: „Sá sem tapar þarf að hætta að gefa út tónlist“ Fannar og Snorri slógust þar til þeir stóðu nánast naktir eftir Höfundur Kaupalkabókanna látinn „Myndi gjarnan vilja að barnið mitt færi líka í heimsókn í mosku“ Einn tenóranna þriggja með tónleika í Hörpu í mars Alltaf til í flipp en nennir ekki að borða vondan mat „Ég nenni ekki að hlusta á 7. október rökstuðninginn enn og aftur“ Einhentar íslenskar vinkonur: „Eins og við hefðum þekkst alla ævi“ Sungu um Labubu og þriðju vaktina um jólin Fagnaði afmælinu með sínum kærustu vinkonum Rúv býður upp á hollenskt fréttastef Sjá meira