Lífið

Leo hætti með Blake fyrir mömmu

Mynd/Getty
Leonardo DiCaprio er hættur með Blake Lively ef marka má slúðurmiðla vestanhafs. Ástæða sambandsslitanna ku vera móðir hans, Irmelin DiCaprio, en henni líkaði ekki vel við Gossip Girl-stjörnuna. Leonardo ákvað nýlega að kynna kærustuna fyrir móður sinni, en sagt er að þá hafi allt farið úrskeiðis.

Blake var svo stressuð að hún gat ekki hætt að tala um sjálfa sig, Gossip Girl og hvernig það væri að vera fyrirsæta hjá tískurisanum Chanel. Stúlkan blaðraði og blaðraði alveg þar til Irmelin fékk nóg. Mömmustrákurinn Leonardo ákvað því að enda sambandið og skildi Blake eftir í öngum sínum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.