Með augum útgefandans 1. júlí 2011 14:00 Jóhann hefur verið virkur áhugaljósmyndari frá unglingsaldri. Mynd/Jóhann Páll Valdimarsson
Jóhann Páll Valdimarsson útgefandi hefur fært sig upp á skaftið sem ljósmyndari. Á dögunum hélt hann sýningu á Íslendingaslóðum í Kanada og á laugardag opnar hann sýningu með landslagsmyndum úr Skorradal. Þótt bækur séu ær og kýr Jóhanns Páls Valdimarssonar útgefanda hefur hann verið virkur áhugaljósmyndari frá unglingsaldri. Á liðnum árum hefur hann fengið útrás með höfundar- og kápumyndum á bókum Forlagsins. Nú hefur hann hins vegar stigið næsta skref og haldið sínar fyrstu einkasýningar. Sú fyrri opnaði í Manitoba í Kanada á sjálfan þjóðhátíðardaginn, þar sem Jóhann sýndi portrettmyndir af íslenskum af höfundum og landslagsmyndir. Á laugardag opnar Jóhann Páll sína fyrstu einkasýningu hér á landi í Galleríi Fjósakletti að Fitjum í Skorradal. „Skorradalur hefur verið svo að segja mitt annað heimili undanfarin ár," segir Jóhann. „Ég hef tekið ótal myndir hér í dalnum og nágrenninu og tók saman úrval mynda sem verða til sýnis í allt sumar." Allur ágóði af sölu myndanna á sýningunni rennur til stuðnings á endurgerð Pakkhússins í Vatnshorni, elsta hússins í Skorradal. „Já, athugaðu að þetta er ekki bara montsýning fyrir mig," segir Jóhann og hlær. „Pakkhúsið á sér mjög merka sögu, kemur meðal annars mikið við sögu í bókinni Svipþing, endurminningum Sveins Skorra Höskuldssonar prófessors. Húsið er mikil prýði fyrir sveitina og ég vona að þessi litla sýning mín komi að einhverju gagni við endurgerð þess." Einungis verður seld ein prentun af hverri mynd. Spurður hvort hann sjái stundum eftir því að hafa ekki tekið sér ljósmyndunina fyrir hendur frekar en útgáfuna, segir Jóhann svo ekki vera. „Bækurnar hafa alltaf átt hug minn allan en ljósmyndunin verið ástríðufullt áhugamál, sem hefur æxlast svo skemmtilega að það er orðið hluti af vinnunni." Sýning Jóhanns að Fitjum stendur til 10. september. bergsteinn@frettabladid.is
Menning Mest lesið Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Ljóðrænt hótel á Akureyri Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Selja herrasetur í Þingholtunum Lífið Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lífið Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Lífið Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Lífið Uppskrift: Bragðmikill grillaður kjúklingaborgari að hætti Rakelar Maríu Lífið samstarf Aldraður og moldaður Tom Cruise til bjargar jörðinni Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Sjá meira