Lífið

Jessica 6 á Austur

Bandaríska tríóið spilar á Austur í kvöld.
Bandaríska tríóið spilar á Austur í kvöld.

Bandaríska danstríóið Jessica 6 og Of Monsters and Men, sem vann Músíktilraunir í fyrra, koma fram á Austur – Live-kvöldi sem verður haldið í fyrsta sinn á skemmtistaðnum Austur í kvöld. Austur – Live er ný tónleikaröð þar sem ferskar innlendar og erlendar hljómsveitir koma fram.

Jessica 6 er skipuð fyrrverandi meðlimum Hercules and Love Affair sem spilaði á Iceland Airwaves hátíðinni 2009. Tríóið gefur í maí út sína fyrstu plötu, See the Light, og er þessa dagana á tónleikaferð um Evrópu. Á plötunni syngur Antony Hegarty úr hljómsveitinni Antony and the Johnsons í laginu Prisoner of Love.

Tónleikarnir á Austri standa yfir frá kl. 22 til 01. Frítt verður inn á tónleikana.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.