Lífið

Leitar huggunar hjá Timberlake

Leikkonan Scarlett Johansson hefur leitað huggunar hjá Justin Timberlake eftir að hún skildi við eiginmann sinn. nordicphotos/getty
Leikkonan Scarlett Johansson hefur leitað huggunar hjá Justin Timberlake eftir að hún skildi við eiginmann sinn. nordicphotos/getty

Leikkonan Scarlett Johansson mun hafa leitað huggunar hjá söngvaranum Justin Timberlake eftir að hún skildi við eiginmann sinn, leikarann Ryan Reynolds.

Parið kynntist þegar Johansson lék í tónlistarmyndbandi við lag Timberlakes, What Goes Around, Comes Around, og voru þau sögð hafa átt í stuttu ástarsambandi um það leyti. Samkvæmt heimildarmönnum er núverandi kærasta Timberlakes, leikkonan Jessica Biel, ekki alls kostar sátt við að Johansson og Timb­erlake séu aftur farin að tala saman.

„Scarlett og Justin áttu í eldheitu ástarsambandi rétt áður en hún kynntist Ryan og nú þegar Scarlett er aftur orðin einhleyp er Jessica hrædd um að það eigi eftir að hitna í kolunum hjá þeim Justin,“ sagði heimildarmaðurinn. „Jessica hefur leyft Justin að haga sér eins og hann vill til að fæla hann ekki frá, en nú er hún hrædd um að missa hann fyrir fullt og allt.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.