Íslenskur framleiðandi sópar til sín stjörnum 2. febrúar 2011 09:45 Eva Maria, David Duchovny og Vera Farmiga.
Eva Maria Daniels, íslenskur kvikmyndaframleiðandi í Hollywood, hefur fengið Veru Farmiga til að leika aðalhlutverkið í kvikmynd sinni, Goats. Farmiga var tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrir tveimur árum en hún þótti fara á kostum í Jason Reitman myndinni Up in the Air. Hún hefur þar að auki leikið í kvikmyndum á borð við The Departed. Eva Maria hefur jafnframt klófest X-Files leikarann David Duchovny og Will Arnett auk Minnie Driver sem er þekkt fyrir leik sinn í Grosse Pointe Blank, Good Will Hunting og fjölda annarra mynda. Upphaflega stóð til að Rooney Mara færi með aðalhlutverkið í Goats en hún var síðar ráðin til að leika tölvuhakkarann Lisbeth Salander í amerísku útgáfunni af bókum Stieg Larsson. Hún neyddist því til að segja sig frá myndinni vegna anna á öðrum vígstöðvum enda er fastlega búist við því að Karlar sem hati konur verði einn af smellum þessa árs. Þá stóð jafnframt til að Kevin Kline yrði meðal leikara en hann er einnig horfinn á braut. Það vakti mikla athygli þegar Fréttablaðið greindi frá því að Eva Maria væri einn af framleiðendum kvikmyndarinnar Romantics sem skartaði Katie Holmes, eiginkonu Tom Cruise, í aðalhlutverki. Eva Maria hafði áður unnið með Sigur Rósar piltunum og getið sér gott orð fyrir störf innan kvikmyndageirans í London áður en hún settist að í Hollywood.- fgg
Mest lesið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Fleiri fréttir Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Sjá meira