Kærastan á mig ein 2. febrúar 2011 07:00 "Ef ég er úti á landi hringir hún kannski oftar en þegar ég er í bænum, en annars er hún bara róleg," segir Friðrik Dór. Mynd/GVA „
Helgarnar, eins og lífið sjálft, hafa lítið breyst eftir að frægðin bankaði upp á, utan hvað ég vinn þegar aðrir skemmta sér og stundum er leitt að geta ekki tekið þátt í því sem vinirnir gera," upplýsir tónlistarmaðurinn Friðrik Dór. „Oftast syng ég á föstudags- og laugardagskvöldum, en er svo ræstur á lappir snemma því á laugardögum klukkan 9 og sunnudögum í hádeginu þjálfa ég 7. flokk karla í FH í fótbolta. Því fara þessi tvö störf ekki sérlega vel saman en mér finnst gaman að vakna snemma," segir Friðrik, sem er heitari en kraumandi hraun um þessar mundir. „Ég hef spilað víða um land og séð að fólk skemmtir sér mismunandi eftir landshlutum, en ólík stemning og fjölbreytileiki fólksins þykja mér hressandi," segir Friðrik, sem eftir þjálfarastarfið safnar kröftum heima við þar til hann stígur á stokk um kvöldið. „Ég er heimakær og finnst langbest að chilla yfir enska boltanum, bíómynd, FIFA- eða COD-leik í PlayStation3, en helgarnar nýti ég líka til að sinna vinum og ættingjum," segir Friðrik og útskýrir að hann hafi aldrei verið drjúgur í djamminu um helgar. „Mér hefur aldrei þótt geggjað að fara á skemmtistaði því ég höndla ekki mannþröngina," segir Friðrik, sem játar að finna orðið fyrir auknum þunga frægðarinnar. „Allt er það samt vinsamlegt og gaman þegar fólk gefur sig á tal við mig. Sjaldnast eru það djúpar eða langar samræður, en meira frasar úr lögunum mínum, eins og „Keyrum þetta í gang" og þá svara ég með frasa á móti. Aðrir vilja rifja upp fyrri kynni, eins og að hafa hitt mig á flugvellinum í Eyjum, og það er skemmtilegt þótt ég muni sjaldnast eftir andlitinu," segir Friðrik hláturmildur. „Ég hef húmor fyrir frægðinni og stelpurnar, jújú, þær eru hressar og sækja að mér, en ég á mína kærustu og er voða lítið að pæla í atgangi stelpna." En er kærastan ekkert smeyk um kærastann sinn í sviðsljósinu? „Ef ég er úti á landi hringir hún kannski oftar en þegar ég er í bænum, en annars er hún bara róleg. Ég held hún viti líka að hún geti verið róleg því hún á mig ein." thordis@frettabladid.is
Mest lesið Skipta um stríðsguð vegna alvarlegra meiðsla Bíó og sjónvarp Ríflega tuttugu verk eftir Ella Egils og dóttur hans til sýnis Lífið Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Lífið Grafalvarlegt nýtt efni: „Jafn tilgangslausar og að selja flugelda inni í helli“ Tónlist Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið Tónlist Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Lífið Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Brjálaðar boltamömmur berjast Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Fleiri fréttir Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Ríflega tuttugu verk eftir Ella Egils og dóttur hans til sýnis Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Sjá meira