Vitnisburður um þrautseigju íslenskra listamanna 5. febrúar 2011 11:00 Jóhann páll valdimarsson Telur einsdæmi að jafn umfangsmikið verk og Íslensk listasaga komi út í einu lagi hér á landi. Fréttablaðið/Arnþór
Ráðgert er að fimm binda yfirlitsrit um íslenska listasögu komi út með haustinu. Fjórtán höfundar taka þátt í ritun verksins, sem Forlagið gefur út í samvinnu við Listasafn Íslands. Yfirlitsritið Íslensk listasaga, sem væntanlegt er í haust, spannar tímabilið frá síðari hluta 19. aldar til upphafs 21. aldar og verður um 1.500 síður í stóru broti. Fjögurra ára vinna liggur að baki útgáfunni. Árið 2007 var Ólafur Kvaran ráðinn ritstjóri verksins, skipuð var ritstjórn og gerðir samningar við fjórtán höfunda um ritun verksins. „Markmiðið var að gera vandað yfirlitsverk um íslenska myndlist fyrir íslenskan almenning," segir Jóhann Páll Valdimarsson, forleggjari hjá Forlaginu. Mikill metnaður hafi verið lagður í að gera ritið sem best úr garði, enda eigi það að verða veigamikill þáttur í íslenskri þjóðar- og menningarsögu. Á síðum bókanna verða litljósmyndir af hundruð listaverkum, auk þess sem mikill fróðleiksbrunnur um íslenska listasögu verður nú aðgengilegur á einum stað. „Ég get fullyrt kinnroðalaust að þetta er eitt mesta stórvirki sem ég hef tekið þátt í," segir hann. „Það er sennilega einsdæmi að jafn umfangsmikið verk komi út í heild sinni á sama tíma enda algengast að margra binda verk komi út með margra ára, jafnvel áratuga millibili. Ég vil því meina að Íslensk listasaga sé mikið menningarframlag, sem vert sé að gefa gaum á þessum erfiðu tímum." Spurður hvort ekki hafi komið til greina að setja verkefnið í salt í ljósi árferðisins segir Jóhann Páll að það hafi vissulega komið til greina. „Hrunið hefur auðvitað valdið útgefendum sem öðrum ómældum erfiðleikum. En við létum slag standa. Eftir það hefur allt kapp verið lagt á að Íslensk listasaga verði að veruleika, bæði sem sígilt menningarrit en ekki síður sem vitnisburður um metnað og þrautseigju íslenskra listamanna og þeirra sem unna listum." bergsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Stór brjóst eru stór Lífið Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Lífið „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Lífið Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Grái skilnaðurinn: Sífellt fleiri 50+ að skilja Áskorun Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Lífið Fleiri fréttir „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Oddvitaáskorun: Býr á Hellu en eiginmaðurinn í Belgíu Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Gummi Tóta og Guðbjörg keyptu á 145 milljónir Sjá meira