Nafn Torres plokkað í burtu 5. febrúar 2011 11:00 Viðar Valsson, verslunarmaður í Jóa útherja og kollegi Sigurðar. Liverpool-aðdáendur eru gramir vegna brotthvarfs Fernando Torres. fréttablaðið/stefán
Liverpool-treyjur með númeri og nafni Fernando Torres hafa undanfarin ár verið þær vinsælustu á meðal fótboltaaðdáenda bæði hér heima og erlendis. Snögg breyting hefur orðið á því eftir að framherjinn gekk til liðs við Chelsea. Til að bregðast við vistaskiptunum hafa fyrrverandi aðdáendur Torres hérlendis látið fjarlægja nafn hans af Liverpool-treyjum sínum og sett í staðinn nafn nýja framherjans Andy Carroll, sem tók einmitt við númeri Torres. „Margir hringja og vilja losa stafina eða nafnið af og setja Carroll yfir. Við getum ekki tekið stafi af, það er annað fyrirtæki sem gerir það, en við setjum nafnið yfir, það er minnsta málið,“ segir Sigurður Garðarsson, verslunarmaður í Jóa útherja. Hann segir að margir Púlarar hafi að vonum verið gramir yfir brotthvarfi Torres. „Þetta er aðallega leiðinlegt fyrir þá sem eiga treyjur með honum og voru kannski nýbúnir að kaupa þær,“ segir hann og bætir við að margir láti líka merkja treyjur með nafni hins nýja framherjans í Liverpool, Luis Suarez frá Úrúgvæ. Aðspurður segir Sigurður að verslunin eigi ekki Liverpool-treyjur með nafni Torres á lager því hún selji ekki fyrir fram merktar treyjur. „En við eigum eitthvað af römmuðum myndum og plakötum með Torres og það er ekki alveg það vinsælasta í dag.“ Torres er þó ekki dauður úr öllum æðum í versluninni því aðdáendur Chelsea hafa verið duglegir að mæta í búðina til að merkja treyjurnar sínar með nafni hans.- fb
Mest lesið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Fleiri fréttir Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Sjá meira