Baggalút mest skilað eftir jól 19. janúar 2011 05:00 Nýjustu plötu Baggalúts var mest skilað eftir jól, sem telst vera eðlilegt enda seldist hún best fyrir jólin.
Plötunni Næstu jól með Baggalút var mest skilað eftir nýafstaðna jólatörn hjá Senu, stærsta útgáfufyrirtæki landsins. Platan varð sú næstsöluhæsta á síðasta ári og seldist í 8.100 eintökum fyrir jól, þrátt fyrir að hafa verið ófáanleg í nokkra daga vegna óveðursins í Bretlandi. Að sögn Eiðs Arnarssonar, útgáfustjóra Senu, er það nánast alltaf svo að sú plata sem selst mest fyrir jólin er sú sem er mest skilað. „Þetta nánast liggur alltaf í hlutarins eðli,“ segir Eiður. Skil á plötum snúast aðallega um þau eintök sem fara í verslanir og seljast ekki og er því skilað aftur til útgefandans. Söluhæsta plata síðasta árs, Þú komst í hlaðið, með Helga Björnssyni og Reiðmönnum vindanna kom hvergi við sögu í skilunum enda kom hún út síðasta sumar. Alls seldist hún í rúmum 11.500 eintökum, auk þess sem síðasta hestaplata Helga, Ríðum sem fjandinn, seldist í um 1.300 eintökum þrátt fyrir að hafa komið út sumarið 2009. Alltaf er eitthvað um að plötur seljist minna en búist var við af framleiðanda og sú varð meðal annars raunin með safnplötu Kristjáns Jóhannssonar. Hún seldist í um sjö til átta hundruð eintökum en búist var við á annað þúsund eintaka sölu fyrir jólin. „Þetta er vissulega minna en við áttum von á,“ segir Eiður og bætir við að skilin á henni hafi verið hlutfallslega há. Sú plata á samt vafalítið eftir að seljast áfram næstu árin, enda eigulegur gripur þar á ferð. Ef rýnt er nánar í sölutölur Senu kemur í ljós að fyrsta plata popparans Friðriks Dórs seldist rúmlega hundrað eintökum betur en nýjasta plata Sálarinnar, sem fór í rúmum 1.800 eintökum. Hljóta það að teljast vonbrigði þar á bæ. Einnig vekur athygli að plata Diktu, Get It Together, sem kom út fyrir þarsíðustu jól, seldist í um 6.300 eintökum á síðasta ári og varð sú þriðja söluhæsta hjá Senu. - fb
Mest lesið Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Stór brjóst eru stór Lífið Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Lífið „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Lífið Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Grái skilnaðurinn: Sífellt fleiri 50+ að skilja Áskorun Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Lífið Fleiri fréttir „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Oddvitaáskorun: Býr á Hellu en eiginmaðurinn í Belgíu Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Gummi Tóta og Guðbjörg keyptu á 145 milljónir Sjá meira