Krimmakóngur horfir til Íslands 11. febrúar 2011 20:00 Jussi Adler-Olsen hefur slegið rækilega í gegn með spennusögum sínum í Danmörku. „
Jussi er einn heitasti höfundurinn í Skandinavíu í dag og við urðum fyrst til að hreppa hnossið,“ segir Egill Örn Jóhannsson, framkvæmdastjóri Forlagsins. Á næstu vikum kemur fyrsta bók danska spennusagnahöfundarins Jussi Adler-Olsen, Konan í búrinu, út á íslensku. Adler-Olsen þessi hefur notið fáheyrðra vinsælda í Danmörku síðustu misseri. Til marks um það voru allar sex bækur hans á topp tíu danska bókalistans eina vikuna í janúar en undanfarið hafa að jafnaði þrjár bóka hans átt fast sæti þar. Þó er ekki nema rúmt ár síðan hann sló rækilega í gegn. „Þetta er mest seldi höfundur Dana í dag eins og sést á topplistum þar í landi,“ segir Egill, hæstánægður með að hafa landað höfundinum. Egill hitti Adler-Olsen einmitt á bókamessunni í Frankfurt síðasta haust. „Hann setti sig bara í samband við mig, maður var hálf „starstruck“. Við áttum þarna ágætis spjall og hann hefur mikinn áhuga á landi og þjóð. Hann hefur mikinn áhuga á að koma til Íslands, bæði til að skoða landið og skrifa að ég held.“ Aðspurður segir Egill að fyrsta bók Adler-Olsens komi vonandi út síðar í þessum mánuði. Hinar fimm verði svo gefnar út „rösklega“ á næstunni. Þá eiga spennusagnaunnendur von á nýjum bókum frá James Patterson, Lee Child, Ásu Larsson og fleirum.- hdm
Mest lesið Skipta um stríðsguð vegna alvarlegra meiðsla Bíó og sjónvarp Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Lífið Grafalvarlegt nýtt efni: „Jafn tilgangslausar og að selja flugelda inni í helli“ Tónlist Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið Tónlist Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Brjálaðar boltamömmur berjast Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist Stytta af Charlie Kirk á Times Square Lífið Fleiri fréttir Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Sjá meira