Hera er opinber söngkona Mr. Gay World USA 6. maí 2011 18:00 Hera er elskuð og dáð af hommum og lesbíum í Bandaríkjunum. Fréttablaðið/Valli „
Ég vona að þetta vindi upp á sig. Þetta er besti bransinn til að byrja í því þetta eru „trendsetterarnir“,“ segir söngkonan Hera Björk Þórhallsdóttir. Hera er sjóðandi heit í heimi samkynhneigðra í Bandaríkjunum um þessar mundir. Hún er opinber söngkona keppninnar Mr. Gay World USA og lag hennar, Je Ne Sais Quoi, er lag keppninnar. Undankeppnir hefjast víða um Bandaríkin í júní og Hera kemur fram á einhverjum þeirra. Þá kemur hún fram í lokakeppninni í janúar á næsta ári. „Þetta er algjör lukkupottur fyrir mig,“ segir Hera hæstánægð. „Ég kann mjög vel við mig á þessum markaði og þetta er það besta sem gat komið út úr þessu öllu – og það á bara eftir að versna. Í góðum skilningi.“Og ertu að verða rík af þessu? „Þetta er ennþá á byrjunarstigi að því leyti. Peningarnir eru ekki farnir að streyma inn.“ Hera Björk hefur ástæðu til að brosa þessa dagana, en hún trúlofaðist nýlega ástinni sinni, rekstrarhagfræðingnum Halldóri Eiríkssyni og játar að hún svífi um á bleiku skýi. „Það er bara gott að vera til í dag. Það er ekki yfir neinu að kvarta,“ segir hún. Hera kemur fram á sérstöku styrktarballi íþróttafélagsins Styrmis á Barböru annað kvöld, en herlegheitin eru til styrktar heimsmeistaramóti samkynhneigðra í sundi sem haldið verður í maí 2012 í Reykjavík. „Þeir eru fremstir í flokki, vinna hvert mótið á fætur öðru og eru alveg með‘etta,“ segir Hera, sem kemur einmitt fram á heimsmeistaramótinu í ár, en það fer fram á Havaí. Loks kemur Hera fram á djasstónleikum í Salnum í Kópavogi á föstudaginn í næstu viku. - afb
Mest lesið Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Lífið Neistalaus trekantur leiðinlega fólksins Gagnrýni Bezos færir brúðkaupið vegna mótmæla Lífið „Þetta er auðvitað klisja en hann var fullkominn“ Lífið Ástin kviknaði á Humarhátíð Lífið Rúrik nældi sér í suðræna Sóleyju Lífið Þessi vilja verða safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Lífið Sælureitur Frosta og Helgu Gabríelu til sölu Lífið „Ætlaði að halda þessu leyndu“ Lífið Tíu Þjóðhátíðarráð Arons Mola: „Ekki fara í tjörnina “ Lífið Fleiri fréttir Ósýnileg veikindi hafi ekki minna vægi „Las þetta allt í drasl í gamla daga“ Þessi vilja verða safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Þorgerður brák grafin úr gleymsku „Þú gerir heiminn að betri stað“ Ástin kviknaði á Humarhátíð Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Sælureitur Frosta og Helgu Gabríelu til sölu Tíu Þjóðhátíðarráð Arons Mola: „Ekki fara í tjörnina “ Bezos færir brúðkaupið vegna mótmæla Fyrsta fjölbragðaglímufélag landsins stefnir á sýningu „Þetta er auðvitað klisja en hann var fullkominn“ Zendaya sást í miðbænum Orri Steinn og Sylvía Rós eignuðust stúlku á þjóðhátíðardaginn Sumarleg og saðsöm salöt Verðlaunahús í Þingholtunum falt fyrir 239 milljónir Hálfmaraþon í hamingjusprengju eftir fótbrot í fyrra Glæsilegustu gellur Garðabæjar skáluðu á Garðatorgi „Ætlaði að halda þessu leyndu“ Heillandi heimili á Kársnesinu fyrir 236 milljónir „Fallegur fjölskyldusamruni“ Feneyjabúar æfir yfir glæsibrúðkaupi Bezos Stjörnum prýtt brúðkaup landsliðsmanns í Grikklandi Barnahátíðin Kátt snýr aftur Stjörnulífið: Laufey á Íslandi og stjörnubrúðkaup í Grikklandi Þegar stjórnvöld úðuðu efnum yfir almenning Málaði loftið í lit sem minnir á skólajógúrt Umbreyta Þjóðleikhúskjallaranum í kabarettklúbbinn Kit Kat „Þetta er bara það sem mig hefur langað alla ævi“ Krakkatían: Leðurblökumaðurinn, Elli Egils og 17. júní Sjá meira