"Þetta er miklu meira en við bjuggumst við" Jóhanna Margrét Gísladóttir skrifar 25. desember 2011 18:45
Örtröð myndaðist í Pétursbúð í Reykjavík í dag enda ein af fáum búðum sem var með opið. Biðtíminn var allt upp í hálftími en kaupmannshjónin ætla að standa vaktina eins lengi og þarf. Það voru einungis örfáar búðir á opnar á höfuðborgarsvæðinu í dag til dæmis Pétursbúð við Ránargötu en þar var stöðugur straumur af fólki þegar fréttastofa leit við um hálf fimm í dag. Röðin hlykkjaðist um alla búðina og biðu þolinmóðir viðskiptavinir í hátt í hálftíma eftir afgreiðslu þegar mest var. Hvernig datt ykkur í hug að hafa opið á jóladag? „Þetta varð bara svoleiðis, þetta er þriðja árið í röð sem við gerum það en þetta er svolítið meira en við bjuggumst við - miklu meira," segja Björg Leifsdóttir og Baldvin Ragnarsson, eigendur Pétursbúðar. Þau segja röðina ekki hafa stoppað síðan hálf eitt og eru þau sannfærð um að hafa bjargað jólamatnum hjá mörgum. En hvað er það aðallega sem fólk er að kaupa? „Það er rjóminn, mjólkin og það vantaði meira að segja hangikjöt hjá mörgum en það er allt að verða búið hérna inni," segja þau. Þá vilja þau uppfylla hlutverk sitt sem kaupmaðurinn á horninu með að þjónusta fólkið í hverfinu. „Við lokum ekkert klukkan fimm, það verður opið á meðan einhver er. Við viljum ekki reka neinn í burtu, ef einhvern vantar eitthvað þá fær hann það sem hann vantar." Og þau hafa engar áhyggjur af jólamatnum hjá sjálfum sér. „Það er bara kalt borð síðan í gærkvöldi. Það var eldað vel í gær og síðan er það bara borðað kalt eða hitað upp í kvöld þegar við náum að loka," segja þau hjónin að lokum. Þess má geta að verslunin Nesval á Melabraut á Seltjarnarnesi er opin til 21 í kvöld.
Mest lesið Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Innlent Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Innlent Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Innlent Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Innlent Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Erlent Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Innlent Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Erlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Innlent Fleiri fréttir Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Sjá meira