Innlent

Gámur fauk út á haf - myndband

Hér má sjá mynd af gámnum á hafi úti.
Hér má sjá mynd af gámnum á hafi úti. Mynd/Agnes Klara
Gámur fauk á haf út í óveðrinu á Stöðvarfirði í morgun. Um er að ræða 40 feta frystigám.

Björgvin Valur Guðmundsson, íbúi á Stöðvarfirði náði atvikinu á myndband. Myndbandið má nálgast á þessari síðu: https://vimeo.com/31675022 Gámurinn fýkur þegar rúm ein mínúta og tíu sekúndur eru liðnar af myndbandinu.

Landhelgisgæslan fékk aðstoðarbeiðni vegna atviksins. Nýja varðskipið Þór var sent á staðinn, enda var Þór staddur á svæðinu vegna björgunaraðgerða flutningaskipsins Ölmu. Því lítur út fyrir að fyrsta fyrirbærið sem Þór bjargar við strendur þessa lands verði 40 feta frystigámur. Það er þó ekki alveg víst því enn hefur ekki verið ákveðið hvort gámurinn verði tekið um borð eða ekki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×