Iðnaðarráðherra: Alcoa einnig áhugalausir 20. október 2011 13:58 Katrín Júlíusdóttir.
Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra, gaf til kynna að áhugaleysi Alcoa hefði einnig orðið til þess að fyrirtækið ákvað að byggja ekki álver á Bakka nærri Húsavík í sérstökum umræðum um málið á Alþingi í dag. Þar gagnrýndi Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hlut ríkisstjórnarinnar og sakaði ríkisstjórnina um að hafa beitt sér pólitískt gegn uppbyggingu álversins. Hann sagði þúsund störf hefðu tapast vegna afstöðu ríkistjórnarinnar. Katrín spurði á móti hvers vegna Alcoa hefði aldrei sótt um lóð á Bakka. Þá spurði hún hversvegna Alcoa hafi aldrei hafið formlegar viðræður um orkukaup og að auki hversvegna ekkert væri minnst á breyttar fyriráætlanir fyrirtækisins á heimasíðu fyrirtækisins. „Alvaran var ekki jafn mikil og væntingar voru gefnar norður,“ sagði Katrín. Hún benti ennfremur á að tvö fyrirtæki hefðu sótt um lóð á Bakka og fimm fyrirtæki ættu í viðræðum við Landsvirkjun um uppbyggingu á svæðinu. Þar af er eitt álfyrirtæki, sem telur sig geta nýtt þau 200 megawött sem standa til boða. Katrín hafnaði alfarið pólitískum afskiptum af ferlinu. Þannig benti hún á að Landsvirkjun hefði ekki verið hluti af viljayfirlýsingu sem var gerð árið 2008 við Alcoa. Þá var Friðrik Sophusson forstjóri Landsvirkjunnar og enginn Steingrímur J. Sigfússon, í fjármálaráðuneytinu. „Við verðum að fylkja okkur á bak við fyrirtækin sem hafa sýnt áhuga en ekki sýna þeim löngutöng og láta eins og þau séu ekki til,“ sagði Katrín að lokum. Birkir Jón Jónsson, þingmaður Framsóknarflokksins, tók svo til máls og sagði það ljóst að vilji ríkisstjórnarinnar gagnvart uppbyggingu stóriðju, væri afar takmarkaður.
Mest lesið Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Eldur olli miklum skemmdum í kjallara Innlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Nánast búin með stafrófið Innlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Erlent Fleiri fréttir Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Vill verja hundruðum milljóna í þegar dýrt leikskólakerfi „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Þúsundir karla byrla eiginkonum sínum og nauðga Sjá meira