Innlent

Ætluðu að keyra yfir göngubrú á pallbíl - enduðu ofan í Læknum

Lækurinn í Hafnarfirði
Lækurinn í Hafnarfirði Mynd úr safni
Tveir ölvaðir karlmenn um tvítugt voru handteknir í Hafnarfirði um klukkan þrjú í nótt. Þeir ákváðu að keyra yfir trégöngubrú á jeppa-pallbíl við Lækinn í Hafnarfirði en það tókst ekki betur til en svo að þeir veltu bílnum með þeim afleiðingum að handrið brotnaði og bíllinn endaði ofan í Læknum.

Þegar lögregla kom á staðinn voru mennirnir töluvert ölvaðir og voru ósáttir við að lögreglan væri að skipta sér af málinu. Þeir slógust við lögreglumenn við handtöku og annar þeirra hrækti á lögreglumann.

Þeir gista nú fangageymslur og verða yfirheyrðir þegar áfengisvíman er runnin af þeim.

Brúin er nokkuð skemmd eftir atvikið sem og jeppinn, en hann var dreginn upp úr Læknum með kranabíl nú í morgunsárið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×