Innlent

Grunaðir nauðgarar úrskurðaðir í gæsluvarðhald í einn mánuð

mYND ÚR SAFNI
Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í gær tvo karlmenn, sem grunaðir eru um að hafa nauðgað konu sem fékk far með þeim á sunnudagsmorgun, í mánaðarlangt gæsluvarðhald á grundvelli almannahagsmuna.

Konan leitaði strax á neyðarmóttöku vegna nauðgana á Landspítalanum í Fossvogi og kærði svo mennina til lögreglu.

Mennirnir, sem eru með pólskt ríkisfang, voru handteknir síðdegis á sunnudag og í kjölfarið úrskurðaðir í vikulangt gæsluvarðhald. Mennirnir eru um þrítugt og konan á svipuðum aldri. Í Fréttablaðinu á þriðjudaginn kom fram að konan hefði verið stödd í miðbæ Reykjavíkur á leiðinni heim þegar þeir tóku hana upp í bíl sinn og beittu ofbeldi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×