Lífið

Giftist í þriðja sinn

myndir/cover media
Good Morning Vietnam leikarinn Robin Williams, 60 ára, giftist grafíska hönnuðinum Susan Schneider síðasta sunnudag. Þetta er í þriðja sinn sem leikarinn giftist en hann á þrjú börn - Zachary, 28 ára, Zelda, 22 ára, og Cody, 19 ára.

Robin og Susan kynntust árið 2009 stuttu eftir að hann gekkst undir hjartaaðgerð.

Susan skrifaði eftirfarandi á Twitter síðuna sína daginn eftir að hún játaðist Robin:  Fæturnir mínir eru gjörsamlega búnir á því. Nú er málið að liggja í baðkarinu, borða m&m og skrifa.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.